Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Kristján Már Unnarsson skrifar 9. apríl 2026 11:51 Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins og nýr lögmaður, kynnir stjórnarsáttmálann. Hann er aðeins 29 ára gamall og yngsti lögmaður í sögu Færeyja. Kringvarpið Víðtækar pólitískar málamiðlanir voru nauðsynlegar, sagði Beinir Johannesen, nýr lögmaður Færeyja, á blaðamannafundi í Þórshöfn laust fyrir hádegi. Þar kynntu formenn flokkanna þriggja, sem mynda nýja landsstjórn í Færeyjum, stjórnarsáttmálann sem ber fyrirsögnina „Ábyrgð, stöðugleiki og breið samstaða“.
Auk embættis lögmanns fer Fólkaflokkurinn með atvinnumál, samgöngur, innflytjendamál og menntamál í landsstjórninni. Bárður á Steig Nielsen, formaður Sambandsflokksins, verður utanríkis- og sjávarútvegsráðherra. Einnig fer flokkur hans með heilbrigðismál sem og orku- og umhverfismál. Aksel V. Johannesen, formaður Javnaðarflokksins og fráfarandi lögmaður, verður fjármálaráðherra í nýju stjórninni. Flokkur hans fær einnig félagsmálaráðuneytið, en þar undir eru meðal annars jafnréttis- og vinnumarkaðsmál. Formenn Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins kynntu stjórnarsáttmálann í beinni útsendingu Kringvarpsins úr Lögþinginu. Frá vinstri: Bárður á Steig Nielsen, Beinir Johannesen og Aksel V. Johannesen, en Beinir er bróðursonur Aksels.Kringvarpið Aðild Sambandsflokksins að landsstjórninni þýðir að ríkjasambandið við Danmörku verður að mestu óbreytt enda er það höfuðstefnumál flokksins. Landsstjórnin hyggst þó taka upp viðræður við ríkisstjórn Danmerkur um að Færeyingum verði tryggður sjálfsákvörðunarréttur í öllum málum sem varða Færeyjar. Utanríkismál eru þar sérstaklega nefnd en í stjórnarsáttmála segir að núverandi rammi veiti Færeyingum ekki nauðsynleg völd í utanríkismálum til að geta gætt eigin hagsmuna gagnvart umheiminum. Flokksformennirnir kampakátir eftir að hafa kynnt stjórnarsáttmálann á blaðamannafundinum.Kringvarpið „Við verðum að vera þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Þess vegna munum við semja við dönsku ríkisstjórnina um að fá aðild að alþjóðastofnunum; þar á meðal með því að gera eða ganga til alþjóðasamninga, svo sem fríverslunar- og tvísköttunarsamninga.“ Nefnt er að kannaður verði möguleiki á aðild að EFTA, en einnig að útflutningsmarkaðir verði styrktir með fríverslunarsamningi við Evrópusambandið og fleiri lönd.
Færeyjar Danmörk Kosningar í Færeyjum Tengdar fréttir Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Samkomulag hefur náðst um myndun nýrrar þriggja flokka landsstjórnar í Færeyjum milli Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins. Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins, staðfesti í viðtali við Kringvarpið í dag að hann myndi leiða stjórnina og verða næsti lögmaður Færeyja. 8. apríl 2026 19:45 Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fólkaflokkurinn er að bæta verulega við sig fylgi í kosningunum sem fóru fram í Færeyjum í dag. Javnaðarflokkurinn, sem var sá stærsti, missir hins vegar töluvert fylgi og endar með þriðja stærsta þingflokkinn á Lögþingi Færeyja. Framsókn og Tjóðveldi, sem voru með Javnaðarflokknum í ríkisstjórn, missa einnig fylgi en þó lítið. 26. mars 2026 23:52 Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira
Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Samkomulag hefur náðst um myndun nýrrar þriggja flokka landsstjórnar í Færeyjum milli Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins. Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins, staðfesti í viðtali við Kringvarpið í dag að hann myndi leiða stjórnina og verða næsti lögmaður Færeyja. 8. apríl 2026 19:45
Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fólkaflokkurinn er að bæta verulega við sig fylgi í kosningunum sem fóru fram í Færeyjum í dag. Javnaðarflokkurinn, sem var sá stærsti, missir hins vegar töluvert fylgi og endar með þriðja stærsta þingflokkinn á Lögþingi Færeyja. Framsókn og Tjóðveldi, sem voru með Javnaðarflokknum í ríkisstjórn, missa einnig fylgi en þó lítið. 26. mars 2026 23:52