Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. apríl 2026 08:02 Að leggja til málanna á viðburði hjá Viðreisn. Sem gerist sjaldan. Það er lygi. Aðsend Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir er oddviti Viðreisnar á Akureyri. Ég er 34 ára, með rætur á Akureyri, Borgarnesi og Raufarhöfn. Hef alltaf verið sjálfstæð, með góða aðlögunarhæfni og vinnusöm. Ég kem úr stórri, harðduglegri fjölskyldu sem hefur mótað mín gildi. Nokkrar staðreyndir um mig: - Sú fyrsta í fjölskyldunni til að fara í háskóla. Í vor útskrifast ég með fjórðu gráðuna, kennsluréttindi. - Við maðurinn minn byrjuðum saman 16 ára, en ég er búin að vera skotin í honum síðan í 8. bekk í grunnskóla. - Hef unnið fjölbreytt störf og byggt upp sterkt tengslanet. - Starfa sem leiðbeinandi í grunnskóla og brenn fyrir velferð ungmenna. - Upplifi daglega áskoranirnar sem skólakerfið stendur frammi fyrir. - Þoli ekki svarið ,,af því þetta hefur alltaf verið svona”. - Móðir tveggja drengja og þekki vel fjölbreyttar þarfir barna og fjölskyldna. - Hef tekið þátt í grasrótarstarfi Viðreisnar á Akureyri frá 2017. - Er gríðarlega spennt fyrir svæðisborginni Akureyri og sé fullt af tækifærum til aukins samstarfs (/sameiningar) sveitarfélagana á svæðinu. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Í 101 Reykjavík. Ég elska að geta rölt út hvenær sem er dags og árs til þess að fylgjast með mannlífinu, rölta á milli verslana og veitingastaða og jafnvel sest í drykk fyrir leikhús eða tónleika. Uppbygging miðborgarinnar er til fyrirmyndar og þar er eitthvað fyrir alla.“ Fjölskyldan á áramótunum. Lovísa, Örvar, Viktor (7 ára) og Samúel (3 ára).Aðsend Hver er uppáhalds bókin þín? „1984 eftir George Orwell. Ég trúi á einstaklings- og athafnafrelsi. Þessi útópíska framtíðarsýn Orwells sýnir okkur hvað ríkisvaldið getur gert þegar við lokum augunum. Við viljum tilheyra samfélagi og til þess þurfum við að standa á eigin fótum, hafa virka gagnrýna hugsun og frelsi til þess að tjá okkur. Mér þykir einstaklega vænt um þessa bók. Mér finnst hún svo mikilvæg að ég kenni hana meira að segja í grunnskóla. Skyldulesning.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Nota gervigreind í fjölda skipulags- og bókhaldsverkefna hjá sveitarfélaginu. Sveitarfélög og ríki eru í miklu færi til að minnka báknið með því að einblína starfsfólki sínu á framlínu- og þjónustustörf því það er hægt að nýta tækni í allskyns bakvinnslu. Það mun spara fleiri hundruðir milljóna á ári.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Félags- tómstunda og lýðheilsustarf barna í gegnum skipulag ‘Börnin okkar’ sem við ætlum að innleiða á Akureyri í samstarfi við vini okkar í Mosfellsbæ. Það verkefni setur linsuna á heildarmynd málaflokksins, fær fólk til að tala saman þvert á stöður og svið og vinnur eftir hugsjón forvarna. Nota peninga núna í staðinn fyrir að eyða þeim margfalt síðar.“ Forystumeyjar að njóta lífsins á Kaldbak. Vinkonuhópur sem kynntist í Háskólanum á Bifröst og börðust saman í gegnum eitt stykki meistaragráðu. Aðsend Hver væri titill ævisögu þinnar? „Konan sem gekk aldrei frá fötunum sínum.“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Fer alveg eftir á hvaða aldri viðtakandi er og hvað klukkan er.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Ég vil banna opin sjókvíeldi, en get rætt mikið um ágæti og framtíðarsýn landeldis.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Að klára eitt verkefni og þegar því lýkur, að byrja á næsta. Ekki byrja á sautján í einu og bæta svo níu við á miðri leið.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Ég vil starfandi mannauðsstjóra yfir hverri 1-2 stofnunum sem Akureyrarbær rekur. Stuðningur við stjórnendur og starfsfólk skilar sér í minni starfsmannaveltu, minni veikindum, aukinni vellíðan og betri þjónustu við þjónustuþega. Sveitarfélögin hafa verið að sinna mannauðsmálum sem afgangsstærð. Einblína á grunnþjónustu störf og gera það almennilega.“ Fjölskyldan á æfinguAðsend Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Að lesa yfir ritrýnda grein um upplýsingatækni og fingrasetningu í barnaskólum í Ástralíu og draga fram allar blaðsíður þar sem ákveðin hugtök komu fram. Þá get ég bara lesið yfir og nýtt nákvæmlega það sem skiptir máli fyrir hönnunarverkefni sem ég er að vinna að í kennsluréttindanáminu mínu.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Ég þekki flesta oddvita framboðana á Akureyri persónulega og myndi treysta þeim flestum fyrir meirihlutasamstarfi. Viðreisn er stórhuga með skýra framtíðarsýn fyrir gesti og íbúa svæðisborgarinnar Akureyri, en margir flokkar hafa verið fastir í smábæjar hugsun. Skipulag miðbæjarins og hönnunarsamkeppni um Akureyrarvöll er gott dæmi um það.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Hvar á ég að byrja? Að fara ekki í skiptinám á framhaldsskólaaldri voru stór mistök. Ef ég fengi að fara aftur í tímann vitandi allt sem ég veit núna, þá hefði ég farið til Póllands í skiptinám. Ég öfunda alla sem búa á Íslandi og tala bæði íslensku og pólsku. Tungumál eru svo verðmætur auður.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Snjómoksturinn(!). Friðurinn. Fjöllin. Göngustígarnir. Pizzurnar. Sundlaugarnar. Bakaríin. Hlíðarfjall.“ Training for Warriors fjölskyldan mín og þjálfarar. Sterkasta fólk sem ég þekki, bæði andlega og líkamlega. Aðsend Hvað borðar þú í morgunmat? „Ég fæ æði fyrir mat. Nú er ég með æði fyrir ristuðu súrdeigsbrauði með döðlum, smjör (strax á, prinsippmál að það bráðni!), ostur, þunnum sneiðum af mexíkóost og kokteiltómötum.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Það er verið að taka litlar ákvarðanir hér og þar án þess að hugsa um heildarmynd.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „1. Vera búin að innleiða ‘Börnin okkar’ verkefnið sem raunverulega aðstoðar börn og fjölskyldur þeirra og léttir álag innan skólanna með mælanlegum árangri. 2. Vera komin inn í tilrauna fasa með íþróttaakademíur hugsaðar fyrir ungmenni í 8-10. bekk. 3. Svæðið í kringum Ráðhústorg sé lokað fyrir bílaumferð.“ Föðurfjölskyldan á góðri stundu í Flórída.Aðsend Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Nothing Else Matters með Metallica en Thank God for Silence með Sign nartar í hælana.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Að setja ekki fókusinn á snemmtækan stuðning. Það er verið að skera niður fjármagn til skólana í staðinn fyrir að fjölga úrræðum sem geta veitt börnum faglega aðstoð og utanumhald. Við erum oft að slökkva elda í staðinn fyrir það að koma í veg fyrir að eldurinn kvikni.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Sól. Það er bara svo mikil hlýja og kraftur sem fylgir því að vera stundum kölluð sól.“ Karen Hrönn, pabbi (Eyvindur), ég og mamma (Dóra Hrönn). Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Nr. 1 - Að fjölga úrræðum og stuðningi fyrir börn með fjölþættan vanda, sem hjálpar barninu og fjölskyldu þess en ekki síður starfsfólkinu í skólunum. Nr. 2 - Að einfalda og flýta ferli leyfisveitinga fyrir fjölbreytt viðburðarhald í bænum fyrir hugmyndaríka frumkvöðla. Nr. 3 - Auka aðgengi íbúa að bæjarstjórn.“
Oddvitaáskorunin Akureyri Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Tilkynntu óvart dauða konungsins Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Hvað veistu um... flugvelli? Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Lífið Rick og Morty á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Lífið Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Lífið samstarf Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Menning Fleiri fréttir Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Sjá meira