Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi Valur Páll Eiríksson skrifar 11. apríl 2026 15:58 Igor Thiago skoraði tvö en það dugði skammt. Julian Finney/Getty Images Draumar liða Brentford, Everton og Brighton um Meistaradeildarsæti lifa góðu lífi. Fyrstnefndu liðin tvö skildu jöfn í dag en Brighton vann góðan sigur.
Brentford og Everton voru á svipuðum slóðum í deildinni og gátu bæði hótað aðför að Meistaradeildarsæti er þau mættust í Lundúnum í dag. Igor Thiago kom Brentford yfir af vítapunktinum með tuttugasta deildarmarki sínu á leiktíðinni eftir aðeins þriggja mínútna leik. Portúgalanum Beto hefur gengið aðeins verr að skora fyrir Everton en hann jafnaði leikinn á 26. mínútu. Tæpt korter var eftir þegar ítalski bakvörðurinn Michael Kayode skar inn á völlinn frá hægri og utanfótarskot hans fór af áðurnefndum Thiago og í netið. 21 deildarmark hjá Igor Thiago og 2-1 forysta fyrir Brentford. Kieran Dewsbury-Hall jafnaði aftur á móti fyrir Everton í uppbótartíma og leiknum lauk 2-2. Liðin eru því áfram jöfn að stigum í 7.-8. sæti deildarinnar með 47 stig, stigi á eftir Chelsea og tveimur frá Liverpool sem er í fimmta sæti sem er jafnframt Meistaradeildarsæti. Chelsea mætir Manchester City á morgun en Liverpool spilar við Fulham á Anfield klukkan 16:30 á eftir. Hollendingurinn Mats Wieffer skoraði bæði mörk leiksins fyrir Brighton sem vann 2-0 útisigur á Burnley. Brighton er þökk sé sigrinum með 46 stig í níunda sæti, aðeins stigi frá Brentford og Everton. Veik von heimamanna um að halda sæti sínu í deildinni veikist enn. Burnley er með 20 stig í 19. sæti, tólf frá öruggu sæti þegar aðeins 18 stig eru í pottinum.
Brentford FC Everton FC Brighton & Hove Albion Burnley FC Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Sjá meira