Golf

Rory McIlroy gerði dóttur sína vand­ræða­lega

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rory McIlroy með dóttur sinni Poppy í Masters-vikunni.
Rory McIlroy með dóttur sinni Poppy í Masters-vikunni. Getty/ Jared C. Tilton

Rory McIlroy hélt skemmtilega ræðu eftir að hann vann Mastersmótið í golfi annað árið í röð en ein í áhorfendahópnum varð svolítið vandræðaleg eftir orð meistarans.

McIlroy tók nefnilega að sér hlutverk vandræðalega pabbans gagnvart dóttur sinni Poppy eftir sigur sinn á Masters-mótinu og úr varð krúttlegt augnablik þegar fimm ára dóttir Rory McIlroy setti höfuðið í hendurnar eftir stríðnisleg ummæli hans.

Hin fimm ára gamla Poppy, eiginkonan Erica Stoll og foreldrarnir Gerry og Rosie horfðu stolt á þegar McIlroy flutti sigurræðu sína á sunnudag. Poppy faldi andlitið á krúttlegan hátt í vandræðalegheitum eftir glettnisleg ummæli McIlroy.

Elskar ísinn

„Þetta er klárlega orðin uppáhaldsvika Poppy á árinu. Ég veit ekki hvort það er vegna Par-3 mótsins eða ótakmarkaða íssins í þjónustubyggingu keppenda,“ sagði Rory sposkur.

Poppy var fyrsti fjölskyldumeðlimurinn til að faðma McIlroy eftir að hann tryggði sér sigur á Masters-mótinu annað árið í röð. Með sjötta risatitilinn í höfn gaf McIlroy eiginkonu sinni Ericu stóran koss og vottaði foreldrum sínum tilfinningaþrungna virðingu.

Hann stillti sér svo upp fyrir fjölskyldumyndatökur í sínum öðrum græna jakka, aðeins tólf mánuðum eftir að hann fékk þann fyrsta.

Sigurinn kom eftir að hann náði sér á strik eftir hrunið á laugardaginn og vann efsta mann heimslistans, Scottie Scheffler, með einu höggi .

Sótti um skilnað

Þetta var mynd sem hefði ekki verið möguleg ef McIlroy og Ericu hefði ekki tekist að bjarga sambandi sínu. Þau kynntust árið 2012, byrjuðu saman árið 2014 og giftu sig árið 2017 áður en þau eignuðust Poppy – eina barnið þeirra – árið 2020.

En McIlroy sótti um skilnað árið 2024 og sagði að hjónabandið væri búið. Aðeins vikum síðar var skilnaðarbeiðninni hins vegar vísað frá.

McIlroy sagði á þeim tíma: „Undanfarnar vikur höfum við Erica gert okkur grein fyrir því að besta framtíð okkar væri saman sem fjölskylda. Sem betur fer höfum við leyst úr ágreiningi okkar og hlökkum til nýs upphafs,“ sagði McIlroy.

Parið sættist í tæka tíð fyrir McIlroy til að njóta tveggja af bestu stundum ferils síns.

Hann, Erica og Poppy fögnuðu á átjándu flötinni á Augusta í fyrra, þegar hann batt enda á ellefu ára risatitlaþurrð sína og fullkomnaði feril-risaslemmu sína. Þau voru aftur hamingjusöm fjölskylda um helgina þegar McIlroy vann annað árið í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×