Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. apríl 2026 16:45 Guðjón Valur Sigurðsson mun eflaust sakna Julian Köster sárlega í næstu leikjum. Getty/Michael Hundt Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, þarf að leggjast vel yfir leikplönin núna því besti leikmaður liðsins varð fyrir alvarlegum meiðslum.
Gummersbach er á ótrúlegri sigurgöngu í þýsku deildinni og vann um helgina sinn tíunda deildarsigur í röð, 32-24 gegn Wetzlar. Liðið komst þar upp í fjórða sæti deildarinnar og er í baráttu um Evrópusæti við risana fjóra: Magdeburg, Flensburg, Fucshe Berlin og Kiel. Athygli vakti að Julian Köster, landsliðsmaður Þýskalands og fyrirliði Gummersbach, var ekki með í þeim leik. Hann var með skaddað liðband og þurfti að gangast undir aðgerð í gær. Julian Köster gekkst undir aðgerð í gær. Sanjin Strukic/Getty Images Óvíst er hversu lengi Köster verður frá en mögulega mun Gummersbach verða án hans í síðustu sjö leikjum tímabilsins. Þar með gæti Köster hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Gummersbach því í sumar skiptir hann yfir til Kiel. Ljóst er að Köster verður sárt saknað en hann er ekki bara fyrirliði heldur framlagshæsti leikmaður liðsins, með flestar stoðsendingar (87) og næstflest mörk (125) á tímabilinu. Mikið mun nú mæða á Miro Schluroff en íslensku landsliðsmennirnir Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson munu líka leggja sitt af mörkum fyrir Gummserbach.
Þýski handboltinn Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira