Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. apríl 2026 10:48 Það kennir ýmissa grasa í spám Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Vísir/Vilhelm Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir því að Ísland falli um eitt sæti landa í Evrópu með mestu landsframleiðsluna árið 2025 að teknu tilliti til kaupmáttajöfnuðar, úr sjöunda sæti í áttunda sæti árið 2030. Landið helst í fjórða sæti yfir lönd með mestu landsframleiðslu á mann að nafnvirði og er efst Norðurlanda á þann mælikvarða.
Þetta kemur fram í umfjöllun EuroNews þar sem tölur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins yfir verga landsframleiðslu á mann eru teknar saman og listaðar upp milli landa. Þar kemur fram að verg landsframleiðsla á mann (VLF) sé eitt mest notaða mælitækið til að bera saman hagkerfi. Spár sjóðsins ná til nafnvirði vergrar landsframleiðslu á manns og kaupmáttarjöfnuðs, sem leiðréttir fyrir verðmun milli landa. Sé einungis tekið mið af vergri landsframleiðslu á mann að nafnvirði helst Ísland í fjórða sæti frá 2025 til 2030 miðað við spár sjóðsins. Þar er Lúxemborg og Írland efst og Sviss í þriðja sæti. Segir í umfjöllun EuroNews að munur á röðun eftir nafnvirði og kaupmáttarjöfnuði segi sína sögu. Þannig séu Malta, Rúmenía, Pólland og Tyrkland öll mun ofar á lista yfir kaupmáttarjöfnuð en nafnvirði í evrum. Það bendi til þess að raunverulegur kaupmáttur þeirra sé meiri en hráar tölur gefi til kynna. „Hið gagnstæða á við um Eistland, Bretland, Ísland og Lettland, þar sem röðun eftir kaupmáttarjöfnuði er áberandi lægri en staða þeirra eftir nafnvirði,“ segir í umfjölluninni. Þar skiptir Ísland á sæti við Möltu, fer úr sjöunda í áttunda sæti og öfugt. Norðmenn eru sæti á eftir Íslandi í því fimmta miðað við nafnvirði, Danir í því sjötta, Svíar fara úr níunda í áttunda og Finnar haldast í þrettánda. Í röðun eftir kaupmáttarjöfnuði verður Noregur fimm sætum ofar en Ísland árið 2030 í því þriðja líkt og árið 2025. Danir verða einnig í sama sæti, í því fimmta en Svíar fara úr ellefta í tíunda sæti. Finnar fara niður um sæti líkt og Íslendingarað teknu tilliti til kaupmáttarjöfnuðar, fara úr þrettánda sæti í fjórtánda. Af 41 Evrópulandi, þar á meðal aðildarríkjum ESB, umsóknarríkjum, EFTA-ríkjum og Bretlandi er því spáð að Írland verði í efsta sæti listans yfir verga landsframleiðslu á mann að teknu tilliti til kaupmáttajöfnuðar árið 2030. Landið taki þar með fram úr Lúxemborg sem er í forrystu 2025. Tekið er fram í umfjöllun EuroNews að þeim fregnum beri að taka með fyrirvara þar sem þekkt sé að tölur yfir verga landsframleiðslu Írlands séu skekktar vegna óvenju mikillar viðveru fjölþóðlegra fyrirtækja í landinu. Mikið bil milli ESB landa og umsóknarríki neðst Neðstu níu sætin eru að mestu skipuð umsóknarríkjum ESB, þar sem Úkraína, Kósovó og Moldóva reka lestina. Tyrkland er undantekningin á meðal þeirra og er spáð 29. sæti árið 2030. Landið er þar fyrir ofan þrenn ESB ríki, Búlgaríu, Lettland og Grikkland. Búist er við að fimmtán lönd haldi stöðu sinni á milli áranna 2025 og 2030. Grikkland fellur mest, úr 29. sæti í 32. sæti, en Kýpur hækkar mest, úr 16. sæti í 13. sæti. Því er ekki spáð neitt annað land færi sig meira en þrjú sæti á lista.
Efnahagsmál Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira