Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Atli Ísleifsson skrifar 21. apríl 2026 07:06 Á Ártúnsbrekku má sjá það sem eftir er af snjónum í skíðabrekkunni. Vísir/Vilhelm Víðáttumikið háþrýstisvæði hefur hreiðrað um sig yfir landinu með hæðamiðju sem þokast rétt suður af landinu með kvöldinu. Veðurstofan gerir því ráð fyrir að það verði yfirleitt fremur hægar suðlægar eða breytilegar áttir og milt veður ríkjandi víða um land vel inn í vikuna.
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag og fram á miðvikudagskvöld sé þó útlit fyrir strekking- eða allhvassan vind norðvestanlands og á Tröllaskaga, en hvassast verður á Ströndum. „Nú fyrir hádegi þykknar upp vestanlands og útlit er fyrir þokuloft þar fram eftir kvöldi, en annars verður bjartviðri í öðrum landshlutum fram á fimmtudag þegar tekur að þykkna upp sunnanlands. Hiti getur víða náð allt að 16 til 18 stigum að deginum. Á föstudag veldur háþrýstisvæði yfir N Grænlandi fremur hægum norðaustlægum áttum og þá gæti kólnar heldur norðan- og austanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestan 10-18 m/s um landið norðvestanvert, annars 5-13. Víða léttskýjað, en skýjað og líkur á þokulofti vestantil. Hiti 5 til 18 stig að deginum, hlýjast suðaustanlands. Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Vestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt vestanlands og við suðurströndina, annars bjart að mestu. Hiti 5 til 13 stig yfir daginn, hlýjast suðaustantil. Á föstudag: Norðan og norðaustan 3-10 m/s, þykknar upp og kólnar norðanlands. Stöku skúrir með ströndinni, en bjart með köflum og áfram milt sunnan heiða. Á laugardag: Suðlæg átt, 3-10 m/s. Dálítil súld með köflum sunnan- og vestantil en annars skýjað með köflum. Hiti 4 til 12 stig að deginum, hlýjast á Vesturlandi. Á sunnudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt og rigningu með köflum, en yfirleitt þurrt norðaustanlands. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Útlit fyrir fremur hægar og mildar suðlægar áttir og rigningu, en úrkomuminna norðaustanlands.
Veður Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Sjá meira