Körfubolti

Martin með stigahæstu mönnum í sigri

Aron Guðmundsson skrifar
Martin setti niður fimmtán stig fyrir Alba Berlin í sigri liðsins í kvöld.
Martin setti niður fimmtán stig fyrir Alba Berlin í sigri liðsins í kvöld. Vísir/Getty

Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Martin Hermannsson, fór mikinn er lið hans Alba Berlin hafði betur gegn Ulm í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 89-77, tólf stiga sigur Alba Berlin.

Alba Berlin er á góðri siglingu í þýsku úrvalsdeildinni og vermir þessa stundina annað sæti deildarinnar. 

Martin var heldur betur öflugur fyrir liðið í kvöld í leik þar sem að Alba Berlin var alltaf skrefinu á undan Ulm. Martin setti niður 15 stig í leiknum, tók fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. 

Með sigrinum heldur Alba Berlin sér í öðru sæti deildarinnar og er langt komið með að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×