Hvergi nærri hættur með KR Aron Guðmundsson skrifar 1. maí 2026 09:31 Jakob Örn verður áfram þjálfari karlaliðs KR í körfubolta Mynd: Vísir Eftir bikarmeistaratitil og endurkomu í úrslitakeppni hafa KR-ingar samið á nýjan leik við þjálfara sinn Jakob Örn Sigurðarson sem og lykilmann liðsins. Stefnan er sett enn hærra.
Frábærar fréttir fyrir KR-inga sem unnu sinn fyrsta stóra titil í sjö ár þegar liðið varð bikarmeistari með sigri gegn Stjörnunni í úrslitaleik. Sömuleiðis komst KR aftur í úrslitakeppni eftir að hafa fallið úr efstu deild árið 2023 „Miðað við tímabilið í fyrra getum við klárlega verið sáttir,“ segir Jakob Örn í samtali við Vísi. „Við náum inn titli, náum að fá úrslitakeppnisleiki aftur hingað í KR-heimilið. Maður er sáttur við það en mér finnst við vera með það gott lið seinni part tímabils að við hefðum klárlega átt möguleika á að fara enn lengra. Það bara gekk ekki í ár. Stefnan er bara sett áfram upp. Það hefur verið góður stígandi í þessu síðustu ár. Mér finnst við klárlega vera á réttri leið.“ „Ég er náttúrulega bara gríðarlega ánægður og þakklátur. Stoltur yfir því að fá tækifæri til þess að vera áfram með meistaraflokkinn. Þetta var aldrei spurning. Ég á yndislega konu sem styður mig í þessu öllu og hefur alltaf gert. Ég hefði aldrei geta gert þetta nema með því að fá hennar stuðning. Það kom og ég er mjög spenntur fyrir tækifærinu. Ég náttúrulega er KR-ingur í gegn, þetta er mitt félag. Ánægður með að fá tækifærið og mun gera allt sem ég get að hjálpa félaginu.“ Ótrúlega sterkt af stjórninni Með nýjum samningi við Lettann Linards Jaunzemz hefur KR svo fest í sessi besta erlenda leikmann tímabilsins sem hefur myndað öflugt tvíeyki með Þóri Guðmundi Þorbjarnarssyn „Að hafa hann og Þóri sem grunninn og kjarnann í okkar liði er bara ótrúlega sterkt af stjórninni. Að ná að halda honum. Þeir eru að mínu mati eitt besta tvíeykið í deildinni. Vinna og henta hvor öðrum rosalega vel“ Jakon Örn og Linard verða áfram í VesturbænumMynd:KR Jakob vill halda í íslensku leikmenn KR og skoða erlenda markaðinn. Markmiðið að vera með KR á toppnum í íslenskum körfubolta „Þetta er það sem Vesturbæingar þekkja og vilja. Við viljum vera á toppnum, viljum vera með lið í fremstu röð að berjast um titla. Það er að sjálfsögðu gríðarleg vinna á bakvið það. Við vorum í fyrstu deild fyrir þremur árum. Að vera komnir á þennan stað er rosalega gott en það er klárlega mikið eftir. Mér finnst félagið og körfuboltinn í KR vera á góðum stað. Mér finnst við bæði vera ná að gera liðið betra með góðum erlendum leikmönnum en á sama tíma eru Íslendingarnir okkar að þroskast, verða betri ár frá ári. Skiptir gríðarlega miklu máli Þá er gróska í körfuboltastarfinu hjá KR. Meistaraflokkar karla og kvenna að fara flotta hluti í efstu deildum og er stefnan sett á að efla yngri flokka starfið enn frekar“ „Þegar að ég kom inn í þetta fyrir þremur árum síðan var ekki bara markmiðið að koma meistaraflokki aftur á toppinn. Það var líka svolítið markmiðið með yngri flokkana að fjölga iðkendum. Gera markvissari æfingar og stefnu þar. Það er enn í vinnslu. Það er gríðarlegur skortur á yngri flokka þjálfurum á ÍSlandi. Það eru mörg félög með stórt yngri flokka starf. Sem þýðir að það vantar fleiri þjálfara, betri þjálfara og kröfurnar eru meiri. Við eins og önnur félög erum að vinna í að fá til okkar betri og hæfari þjálfara í yngri flokka starfið. Af því það skiptir gríðarlega miklu máli.“
Bónus-deild karla KR Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Víkingur - Beer Sheva | Ísraelsmenn mæta í Víkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Sjá meira