Tónlist

Stuðpinnar skáluðu í inn­setningunni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var mikið stuð í útgáfu-innsetningu Róshildar um helgina.
Það var mikið stuð í útgáfu-innsetningu Róshildar um helgina. Aðsend

Það var líf og fjör í einstöku teiti tónlistarkonunnar Róshildar um helgina. Hún gefur út plötu á morgun og tók forskot á sæluna með góðum gestum í svokallaðri útgáfu-innsetningu. 

Rétt áður en Róshildur gefur út sína fyrstu breiðskífu Samferða fengu forvitnir forhlustun um helgina og náðu skyggnast inn í sköpunarferlið og vera samferða Róshildi um stund.

Það var tekið skýrt fram að ekki væri um útgáfutónleika að ræða heldur útgáfu-innsetningu.

„Platan fjallar um leiðirnar sem við deilum með fólkinu í kringum okkur, þeim sem við erum samferða í gegnum lífið. Þetta verk er óður til vinkvenna minna, systra, fjölskyldu og fólks sem hafa verið samferða mér, sum í eitt augnablik eða árstíð og önnur allt lífið,“ segir Róshildur. 

Hér má sjá vel valdar myndir úr innsetningarteitinu:

Glæsilegir gluggar á Hverfisgötu.Aðsend
Sóley Ólafsdóttir djúpt sokkin í tónlist Róshildar.Aðsend
Ebba Katrín, Sara Sigríður og fleiri í góðum fíling.Aðsend
Rauðvín og list.Aðsend
Ebba Katrín, Sara Sigríður og fleiri í góðum fíling.Aðsend
Jóhann Ingi brosti breitt.Aðsend
Ragnheiður Íris Ólafsdóttir, Melkorka Milla Stefánsdóttir og Vala Magnúsdóttir.Aðsend
Róshildur glæsileg.Aðsend
Valgerður Lára Ingadóttir og Arngunnur Hinriksdóttir í stuði. Aðsend
Sóley Ólafsdóttir og Vala Magnúsdóttir.Aðsend
Ebba og Sara lifðu sig inn í verkið.Aðsend
Styrmir Elí Ingólfsson Vigdísarson, Ísak Einarsson og Thelma Mogensen.Aðsend
Heyrnartólin færðu gesti inn í ævintýraheim Róshildar.Aðsend
Valgerður Lára Ingadóttir og Sara Sigríður Ólafsdóttir.Aðsend
Hrafnhildur Anna smellti af mynd.Aðsend
Líf og fjör.Aðsend
Þorgeir K. Blöndal, Ragnheiður Íris Ólafsdóttir og Arngunnur Hinriksdóttir.Aðsend
Saga Guðnadóttir og Jóhann Ingi Skúlason.Aðsend
Innsetningin fór fram á Hverfisgötu.Aðsend
Stefán Hauser Magnússon og Kristín Hulda Gísladóttir.Aðsend
Pæjur.Aðsend
Hlustendur í fíling.Aðsend
Karl Blöndal tengdafaðir Róshildar og Þorgeir K. Blöndal kærasti Róshildar flottir.Aðsend
Róshildur fyrif framan Róshildi.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.