Samstarf

Ungir frum­kvöðlar byggðu allt frá grunni

Snilldarvörur
Þeir Óliver Adam Kristjánsson og Viktor Snær Sigurðsson stukku út í djúpu laugina þegar þeir ákváðu að opna netverslunina Snilldarvörur.
Þeir Óliver Adam Kristjánsson og Viktor Snær Sigurðsson stukku út í djúpu laugina þegar þeir ákváðu að opna netverslunina Snilldarvörur.

Það var Þorláksmessa árið 2021. Klukkan að nálgast miðnætti. Tveir ungir drengir keyrðu á milli húsa með skottið fullt af pökkum, staðráðnir í að engin jólagjöf myndi klikka.

Á bak við fyrirtækið Snilldarvörur standa tveir ungir frumkvöðlar sem sáu tækifæri á markaðnum fyrir hagkvæmar og vinsælar vörur sem oft voru ekki fáanlegar hér á landi. Á sex árum hefur fyrirtækið vaxið hratt og í dag seljast um 4.000 vörur í gegnum netverslunina á mánuði og heildarfjöldi pantana er kominn vel yfir 100.000.

Þeir Óliver Adam Kristjánsson og Viktor Snær Sigurðsson stukku út í djúpu laugina þegar þeir ákváðu að opna netverslun.

Hófu reksturinn á hárréttum tíma

Hugmyndin að fara í sjálfstæðan rekstur og stofna fyrirtæki kviknaði árið 2018 þegar þeir voru enn í námi við Verzlunarskóla Íslands, þar sem þeir voru í sama árgangi og kynntust.

„Við vorum báðir með áhuga á viðskiptum og fórum fljótlega að ræða hugmyndir um að gera eitthvað sjálfir.“ 

Reksturinn fór af stað af fullum krafti í lok árs 2019. Í upphafi seldu þeir vörur í gegnum Hópkaup en árið 2020 fór vefverslunin í loftið, mitt í heimsfaraldri þegar netverslun jókst verulega almennt.

Faraldurinn skapaði þó áskoranir, sérstaklega í innflutningi á vörum þar sem tafir voru tíðar og erfitt að fá vörur til landsins.

Upphafið í bílskúrnum

Þeir byrjuðu í bílskúr foreldra Viktors þar sem starfsemin fór öll fram í upphafi.

Í bílskúrnum þar sem allt byrjaði.

„Í byrjun gerðum við fullt af einföldum hlutum á erfiðan hátt, gerðum póstmiðana handvirkt, prentuðum póstmiðana í venjulegum heimilisprentara, límdum þá á kassana og keyrðum svo með þetta í póstinn. Svo keyrðum við sjálfir út restina af sendingunum sem voru á höfuðborgarsvæðinu, þannig byggðum við traust og vorum með persónulega þjónustu við fyrstu viðskiptavinina.” segir Viktor

Þetta fyrirkomulag stóð yfir í tæpt ár áður en þeir fengu sitt fyrsta húsnæði í Bugðufljóti í Mosfellsbæ.

„Þar gátum við tekið inn stærri sendingar og byrjað að byggja þetta upp af meiri alvöru. Það var stórt skref fyrir okkur.“

Kaupa eingöngu af traustum birgjum

Samkeppni í netverslun hefur aukist hratt á undanförnum árum og neytendur gera sífellt meiri kröfur til gæða. Þeir félagar segja það lykilatriði að vinna aðeins með traustum framleiðendum.

„Við veljum birgja sem hafa langa reynslu, oft 10 ár eða meira og göngum úr skugga um að allar vottanir séu í lagi,“ segir Óliver.

Hann segir að í upphafi hafi þeir oft pantað prufueintök og fengið fjölskyldu og vini til að prófa vörurnar.

„Við viljum frekar borga meira fyrir vöru sem virkar og stenst kröfur viðskiptavina. Við viljum að viðskiptavinir upplifi sama öryggi og þeir gera hjá stærri verslunum: Skýra ábyrgð, góða þjónustu og einfalt ferli ef eitthvað kemur upp“ bætir hann við.

Keyrðu sjálfir út fyrstu pantanirnar

Þeir Óliver og Viktor keyrðu sjálfir vörurnar heim að dyrum í upphafi.

„Við keyrðum fyrstu 2.000 pantanirnar sjálfir heim til fólks. Skiptum póstnúmerunum á milli okkar og keyrðum út á kvöldin,“ segja þeir.

„Fyrir ein jól stefndi allt í að verða alvöru álagstímabil þegar hundruð pantana voru enn óafgreiddar rétt fyrir hátíðirnar og ljóst að umræddar pantanir voru að stórum hluta jólagjafir og að orðspor fyrirtækisins væri undir.

„Það kom einfaldlega ekki til greina að pakkarnir myndu ekki skila sér á leiðarenda fyrir jól,“ segir Óliver.

Þeir kölluðu til vini og fjölskyldu til að hjálpa sér og keyrðu út langt fram á kvöld, dag eftir dag.

„Við náðum að klára allt á Þorláksmessu. Þetta var rosalegur tími en líka mjög lærdómsríkur.“ segir Viktor og bætir við að þetta tímabil sitji enn sterkt í minni.

Varan sem setti þá á kortið

Ein vara skipti sköpum í uppbyggingunni og kom þeim í raun á kortið.

„Stjörnuljósvarpinn okkar sprakk algjörlega í sölu þegar Covid skall á og fólk var mikið heima,“ segir Óliver.

Alls seldust um 6.000 eintök af stjörnuljósvarpanum.

Varpinn, sem líkir eftir stjörnubjörtum næturhimni og skapar stemningu í herbergjum, náði miklum vinsældum á stuttum tíma.

„Þetta var vara sem fólk tengdi við, sérstaklega þegar allir voru heima í sóttkví og vildu gera umhverfið aðeins notalegra.“

Alls seldust um 6.000 eintök af vörunni.

„Þarna sáum við í fyrsta skipti hvað getur gerst þegar maður hittir á rétta vöru á réttum tíma.“

Markhópurinn er breiður en tryggur

Markhópurinn er breiður og spannar í raun allan aldur, enda vöruúrvalið fjölbreytt.

„Við erum með vörur sem henta mjög mörgum, en við höfum séð að eldri markhópurinn hefur verið sérstaklega tryggur okkur,“ segir Viktor.

Hann segir það greinilegt að margir viðskiptavinir komi aftur og aftur:

„Það er eitthvað sem við erum mjög þakklátir fyrir, að fólk treysti okkur og komi aftur til að versla.“

„Ekkert helvítis frí“

Í Urriðaholtinu var pakkað inn dag og nótt og tók mikið á.

Þrátt fyrir árangurinn eru þeir enn mjög virkir í daglegum rekstri og segja fyrirtækjarekstur krefjast mikillar vinnu og úthalds.

Viktor segir að reksturinn fylgi þeim langt út fyrir hefðbundinn vinnutíma:

„Það voru tímabil þar sem vinnutímarnir voru alveg út úr korti, við vorum að vinna allt að 16 tíma á dag og oft fram á fjögur á nóttunni. Þetta var sérstaklega mikið á fyrstu þremur árunum þegar við vorum að byggja þetta upp. Það er merkilegt að við séum ekki orðnir gráhærðir,“ segir Viktor og hlær.

„Þetta er í rauninni alltaf í hausnum á manni. Maður er aldrei alveg ‘ekki í vinnunni’, jafnvel þó maður sé ekki við skrifborðið,“ segir hann.

„Þegar maður hefur svona mikinn áhuga á því sem maður er að gera, þá hættir þetta aldrei alveg. Þetta verður bara partur af daglegu lífi.“

„Við misstum af ýmsu félagslífi og viðburðum á þessum tíma en þetta var einfaldlega það sem þurfti til. Við höfum oft verið að grínast með að “ehf.” sem stendur formlega fyrir einkahlutafélag, standi í okkar tilfelli fyrir ‘ekkert helvítis frí’,“ segir Óliver og hlær.

Hann segir þetta lýsa vel raunveruleikanum í uppbyggingu fyrirtækis, sérstaklega á fyrstu árum rekstursins þar sem vinnudagar verða langir og ábyrgðin gríðarlega mikil.

Viktor tekur undir og segir lykilatriði að gefast ekki upp, sama hvað.

„Það komu upp margar áskoranir en það kom aldrei til greina að hætta. Við vinnum vel saman og höfum ólíka styrkleika sem hjálpa okkur áfram. Við köllum hvorn annan stundum yin og yang, eins og jafnvægi.“

„Án traustsins okkar á milli hefði þetta aldrei gengið. Það er grunnurinn að öllu.“

Mistökin besti skólinn

Þeir viðurkenna að hafa gert mistök í upphafi, bæði í innkaupum og ferlum.

„Það er auðvelt að horfa til baka og sjá hvað hefði mátt fara betur, en á þeim tíma vorum við einfaldlega að læra. Það er engin kennslubók fyrir þetta, maður þarf að fara í gegnum þetta sjálfur,“ segir Óliver.

„Við höfum líka lært að það er í lagi að gera mistök það sem skiptir máli er að læra hratt af þeim og gera betur næst.“

Að þeirra sögn hafa þessi mistök og lærdómur lagt grunninn að sterkari rekstri í dag.

Lesa markaðinn og bregðast hratt við

Viðtal hjá Stöð 2 árið 2023.

„Við fylgjumst með því sem er vinsælt á samfélagsmiðlum og erlendum mörkuðum og hugsum líka um hvað okkur sjálfa langar í. Ef okkur langar í eitthvað eru góðar líkur á að fleiri vilji það líka,“ segir Viktor.

Hann segir hugmyndirnar þó ekki eingöngu koma frá þeim sjálfum:

„Við fáum líka fullt af hugmyndum frá fjölskyldu og vinum, sem hafa fylgst með okkur frá byrjun. Starfsmenn fyrirtækisins koma reglulega með tillögur og svo eru viðskiptavinirnir okkar oft með mjög skemmtilegar og gagnlegar hugmyndir.“

Að hans sögn hefur þetta reynst dýrmætt í þróun vöruúrvalsins. Þeir segja áhersluna vera á vörur sem leysa skýr vandamál fyrir viðskiptavini, eru hagkvæmar og bjóða gott notagildi miðað við verð.

Hröð afhending og ábyrgð lykilatriði

Alltaf gaman að taka á móti stórum sendingum.

Í dag eru pantanir sendar um allt land með Dropp og Póstinum og í mörgum tilfellum fá viðskiptavinir vöruna innan sólarhrings.

„Það er alltaf jafn gaman að heyra af viðskiptavinum sem eru alveg í skýjunum þegar þeir fá pakkann sinn samdægurs, til dæmis á Selfossi. Þetta er þjónusta sem einfaldlega er ekki í boði þegar pantað er af erlendum síðum,“ segir Viktor.

Þeir segja hraða og áreiðanlega afhendingu vera einn af stærstu styrkleikum fyrirtækisins:

„Þar teljum við okkur hafa ákveðið forskot, við erum með vörurnar hér heima og getum brugðist hratt við. Við leggjum mikla áherslu á þjónustu eftir kaup. Við erum með tveggja ára ábyrgð og ef eitthvað kemur upp bætum við úr því.“ bæta þeir við.

Markmiðið er skýrt:

„Við viljum að þjónustan sé einföld, hröð og áreiðanleg. Markmiðið er alltaf að ná henni eins nálægt því að vera upp á tíu.“

Að þeirra sögn hefur þessi nálgun skilað sér í trausti og tryggum viðskiptavinahópi yfir árin.

Minnka verslunarrými og styrkja netrekstur

Árið 2023 opnuðu þeir verslun í Hæðasmára 4 eftir að hafa flutt sig úr Urriðaholtinu en hafa síðan ákveðið að færa verslunarstarfsemina inn í vöruhús félagsins og leggja meiri áherslu á netverslun, afhendingu og lagerhald.

„Rekstrarumhverfið er krefjandi og með því að einbeita okkur að netinu getum við lækkað kostnað, aukið vöruúrvalið og bætt þjónustuna heilt yfir. Þegar allt er undir einum hatti verður reksturinn skilvirkari, tvíverknaður minnkar og við getum brugðist hraðar við eftirspurn. Það skilar sér í betri og fljótari þjónustu fyrir viðskiptavini.“ segir Óliver.

Þeir segja breytinguna einnig hafa einfaldað verkferla verulega og í dag snýst reksturinn um fjölbreytt vöruúrval, aukna skilvirkni og hraðari afgreiðslu.

Leggja sitt af mörkum til samfélagsins

Snilldarvörur hafa frá upphafi lagt mikla áherslu á að gefa til baka til samfélagsins og telja það vera mikilvægan hluta af rekstrinum.

Fyrirtækið er stoltur styrktaraðili íþróttafélaga á borð við Breiðablik og Þrótt.

„Fyrir okkur snýst þetta ekki bara um að byggja upp fyrirtæki heldur líka um að leggja eitthvað jákvætt af mörkum,“ segja þeir.

Fyrirtækið er stoltur styrktaraðili íþróttafélaga á borð við Breiðablik og Þrótt og hefur jafnframt tekið þátt í uppbyggingu og mótahaldi í padel í samstarfi við Sporthúsið.

Þá hefur fyrirtækið stutt við góð málefni, meðal annars með stuðningi við Ljósið og þátttöku í vitundarvakningu á borð við Mottumars.

Að auki hafa þeir lagt sig fram við að styrkja fjölmarga vinninga til félagasamtaka, íþróttafélaga og góðgerðaviðburða um allt land.

„Við teljum mikilvægt að styðja við samfélagið sem styður við okkur. Það skiptir okkur miklu máli að geta gefið til baka og lagt okkar af mörkum þar sem við getum,“ segja þeir.

Þakklæti, vöxtur og spennandi framtíð

Skemmtilegt staffapartý Snilldarvara.

Reksturinn hefur gengið vel og segja þeir félagar viðtökurnar frá viðskiptavinum hafa skipt sköpum í uppbyggingunni.

„Við erum ótrúlega þakklátir öllum okkar viðskiptavinum fyrir traustið og stuðninginn í gegnum tíðina. Það er það sem hefur gert okkur kleift að byggja þetta upp,“ segir Óliver.

Þeir segjast jafnframt spenntir fyrir komandi árum og áframhaldandi vexti fyrirtækisins.

„Við ætlum að halda áfram að þróa reksturinn, bæta þjónustuna og finna næstu snilldarvörurnar sem viðskiptavinir eiga eftir að elska,“ bætir Viktor við.

Nýverið flutti fyrirtækið starfsemi sína í Tónahvarf 5 í Kópavogi þar sem þeir hlakka til að taka á móti viðskiptavinum í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×