„Get alveg lofað þér því að honum leiddist þetta ekkert“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. maí 2026 22:58 Sigursteinn Arndal gefur sínum mönnum fyrirmæli af hliðarlínunni. Vísir/Anton Brink Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, treysti sér ekki í að reyna að útskýra það sem átti sér stað í leik liðsins gegn Val í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.
FH-ingar unnu vægast sagt dramatískan sigur, 37-36, eftir tvíframlengdan leik þar sem úrslitin réðust þegar Daníel Freyr Andrésson varði vítakast á lokasekúndunum eftir að hann hafði sjálfur verið dæmdur brotlegur. „Ég held að ég geti ekkert útskýrt það frekar en einhver annar,“ sagði kampakátur Sigursteinn í leikslok. „En þetta eru náttúrulega bara tvö frábær lið og þetta var ótrúlegur leikur. Bara ótrúlegur karakter og dugnaður í mínum mönnum.“ FH-ingar sýndu einmitt mikinn karakter í kvöld. Þó ekki á þann hátt að liðið hafi snúið við blaðinu eftir að hafa lent mörgum mörkum undir, heldur á þann hátt að klára leikinn eftir að hafa of oft misst niður forskotið. „Já, ég er sammála því. Mér fannst við vera mjög góðir lengst af, en svo bara komum við okkur í erfiða stöðu. Við erum að mæta frábæru Valsliði og það má aldrei gefa eftir. Það koma nokkur augnablik sem við missum þá fram úr okkur, en vá hvað ég er stoltur af bæði FH-liðinu og fólkinu í stúkunni sem hélt alltaf áfram með okkur.“ Þá ætlaði hann ekki að leggja dóm á það þegar Daníel Freyr var dæmdur brotlegur undir lok leiks og Valsmenn fengu vítakast til að jafna leikinn. „Ég ætla ekki að reyna að útskýra regluverkið í kringum þetta. En dómararnir fara í skjáinn og þá hljóta þeir að sjá eitthvað sem þeir telja sig geta staðið við og við treystum því.“ Sjálfur hafði Daníel ekki viljað meina að hann hafi verið að reyna að stela fyrirsögnum með því að gefa víti og verja það síðan undir lok leiksins. Sigursteinn hafði mögulega aðra sýn á það. „Ég get alveg lofað þér því að honum leiddist þetta ekkert,“ sagði Sigursteinn léttur að lokum.
Olís-deild karla FH Valur Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira