Sanna hét áður Díana Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. maí 2026 10:01 Sanna rifjaði upp nafnbreytinguna á milli þess sem hún gæddi sér á eldsterkum blómkálsvængjum með Ara. Sanna Magdalena Mörtudóttir hét eitt sinn Díana Magdalena Mörtudóttir en ákvað að breyta um nafn. Eitt sinn furðaði kjósandi sig á því að hún kæmi ekki fram undir réttu nafni en í ljós kom að Íslendingabók hafði aldrei uppfært skráningu nafns hennar.
Sanna opnaði sig um þetta í nýjasta þætti skemmtiþáttarins Af vængjum fram, þangað sem frambjóðendur til borgarstjórnar mæta og gæða sér á eldsterkum kjúklingavængjum milli þess sem þeir svara krefjandi spurningum á léttari nótum. Þangað mætti hún ásamt Ara Edwald oddvita Miðflokksins í Reykjavík. Kölluð Sanna frá unga aldri Í þættinum berst talið að því hvernig það sé að vera opinber persóna, í framboði þegar allir þekkja mann. Þá rifjaði Sanna upp umræðu um hana á spjallsíðunni Bland.is eftir sveitarstjórnarkosningar 2018 þegar hún bauð sig fyrst fram. „Þar var einhver manneskja mjög hneyksluð og spurði: Bíddu, það er engin Sanna Magdalena inni á Íslendingabók, af hverju geta stjórnmálamenn ekki stigið fram undir sínu rétta nafni? Ég hugsaði bara: Hvað er í gangi? En ég hét semsagt einu sinni Díana. Ég skipti um nafn hjá þjóðskrá.“ Hún segir ástæðuna fyrir því aðeins lengri sögu en segir að hún hafi verið ellefu eða tólf ára þegar hún breytti nafninu sínu hjá þjóðskrá. „Ég er semsagt fyrsta íslenska Sannan, en það var ekki búið að uppfæra þetta alls staðar á öllum vefsíðum og slíkt, þannig það stóð lengi vel Díana Magdalena Mörtudóttir.“ Hvers vegna Sanna? „Foreldrar mínir voru með samkomulag í gangi um að pabbi minn myndi velja fyrsta nafnið og mamma millinafnið. Úr varð Diana Magdalena. Pabbi minn býr semsagt í London, þannig hann valdi Díönunafnið og mig grunar að það hafi kannski verið út af prinsessunni sem þá var. Svo hugsaði mamma bara: Díana passar ekki alveg við hana og byrjaði að kalla mig Dídí og leika sér með nafnið og svo var hún búin að vera lengi með Sönnunafnið í maganum og byrjaði bara að kalla mig Sönnu þegar ég var mjög ung.“ Sanna útskýrir að frá unga aldri hafi því allir í hennar lífi vitað að hún héti Sanna en ekki Díana. Jafnvel þó ekki væri búið að breyta nafninu formlega. „Eins og til dæmis skólakladdanum, þegar það var verið að merkja við börnin sem voru mætt, þá einhvern veginn, fyrst voru A nöfnin, svo B, svo D - þá var það D - er Sanna mætt? Svo sótti ég um hjá mannanafnanefnd, það þurfti að fá leyfi og ég þurfti samþykki beggja foreldra til þess að mega skipta um nafn.“ Alla þætti í þessari seríu Af vængjum fram má horfa á á myndbandsvef Vísis og á Sýn+. Þættirnir eru sýndir í línulegri dagskrá á Sýn á sunnudagskvöldum klukkan 19:10. Næsti þáttur verður frumsýndur á föstudagsmorgun á Vísi.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Af vængjum fram Vinstrið Tengdar fréttir „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segir eitt það vandræðalegasta sem hún hafi þurft að gera í vinnunni hafi verið að stöðva ástarleiki íbúa á Hrafnistu sem var að jafna sig á mjaðmaaðgerð. 30. apríl 2026 09:01 „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi. 20. apríl 2026 15:52 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Björg Magnúsdóttir segir að eitt mesta djammviskubit sem hún hafi upplifað hafi hún fengið eftir að hafa fyrir ótrúlega slysni ælt á trefil vinkonu sinnar á djamminu. 29. apríl 2026 14:00 Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira
„Ég stöðvaði þessar samfarir“ Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segir eitt það vandræðalegasta sem hún hafi þurft að gera í vinnunni hafi verið að stöðva ástarleiki íbúa á Hrafnistu sem var að jafna sig á mjaðmaaðgerð. 30. apríl 2026 09:01
„Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi. 20. apríl 2026 15:52
Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Björg Magnúsdóttir segir að eitt mesta djammviskubit sem hún hafi upplifað hafi hún fengið eftir að hafa fyrir ótrúlega slysni ælt á trefil vinkonu sinnar á djamminu. 29. apríl 2026 14:00