Í fyrsta sinn utan Úkraínu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 28. október 2026 17:01 Það var margt um manninn á Listasafni Íslands í síðustu viku á opnun sýningarinnar Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Elísa B. Guðmundsdóttir Það var margt um manninn á Listasafni Íslands í síðustu viku við opnun sýningarinnar Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Þar eru til sýnis 32 fágætar helgimyndir úr safneign Listasafns Úkraínu í Kænugarði. Verkin eru frá 12. öld fram á öndverða 19. öld og hafa mikið listsögulegt og trúarlegt gildi.
Í fréttatilkynningu segir: „Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og er liður í því að standa vörð um menningararf Úkraínu og efla tengsl þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi einstöku listaverk eru sýnd utan heimalandsins og er sýningin afrakstur náins samstarfs Listasafns Úkraínu, Listasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands. Sýningin stendur í eitt ár. Að henni lokinni verða helgimyndirnar áfram í varðveislu hér á landi, þar sem öryggi þeirra verður tryggt á meðan stríðið í Úkraínu stendur yfir. Undirbúningur verkefnisins hefur staðið í rúmt ár í samvinnu við utanríkisráðuneytið og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.“ Ríkuleg menningararfleifð úkraínsku þjóðarinnar Samkvæmt Ingibjörgu Jóhannsdóttur, safnstjóra Listasafns Íslands, er sýningin mikilvægur sýnileiki verðmætrar arfleifðar. „Hugmyndin að verkefninu kviknaði út frá þeirri ósk okkar að styðja við kollega okkar í Úkraínu og tryggja um leið að menningararfur landsins sé áfram sýnilegur almenningi og minni á hina ríkulegu menningararfleifð úkraínsku þjóðarinnar. Við búum við þau forréttindi að lifa í einu friðsælasta landi heims og okkur langaði að rétta starfssystkinum okkar hjálparhönd, en þau hafa unnið við afar erfiðar aðstæður síðustu ár. Við erum þakklát fyrir að njóta fulls stuðnings stjórnvalda og Þjóðminjasafns Íslands undir stjórn Hörpu Þórsdóttur þjóðminjavarðar,“ segir Ingibjörg. Verkin erlendis í fyrsta sinn Sýningarstjóri er dr. Oleksandra Shevliuga, sérfræðingur í úkraínskri listasögu og flestar myndanna koma úr kirkjum þar sem þær prýddu helgimyndaþilið (íkonóstasis) framan við altarið. Þær bera vitni um sögu og samfélagsbreytingar í aldanna rás og um ríka hefð úkraínskrar textíl- og skreytilistar. „Þetta er í fyrsta sinn í sögu safnsins sem þessi verk eru sýnd erlendis og nær allar myndirnar eru nú í fyrsta sinn utan Úkraínu,“ segir Yulia Lytvynets, safnstjóri Listasafns Úkraínu, og bætir við: „Verkin voru hluti af fastasýningu safnsins sem tekin var niður árið 2022. Þau eru meðal fremstu verka úkraínskrar listar, allt frá miðaldamyndum eftir ónafngreinda meistara til glæsilegra barokkverka. Hver mynd segir ekki aðeins sögu úkraínskrar helgimyndalistar heldur einnig sögu úkraínska ríkisins og safnsins okkar. Á þessum erfiðu tímum hafa kollegar okkar rétt okkur hjálparhönd, bæði við að vernda dýrmætustu menningarverðmæti okkar og við að kynna list úkraínsku þjóðarinnar. Við erum ríkisstjórn Íslands, Listasafni Íslands og Þjóðminjasafni Íslands óendanlega þakklát fyrir að standa vörð um þjóðararf Úkraínu.“ Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: Linda Salbjörg Guðmundsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir Katerina Spathi og Sunna Dagsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir Sigríður Dóra Jóhannsdóttir og Claus Sterneck.Elísa B. Guðmundsdóttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, opnaði sýninguna.Elísa B. Guðmundsdóttir Jo Pawłowskx.Elísa B. Guðmundsdóttir Listamaðurinn James Merry.Elísa B. Guðmundsdóttir Ingibjörg Jóhannsdóttir safnstjóri Listasafns Íslands, Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður og Yuliya Lytvynets Forstöðumaður Þjóðarlistasafns Ukraínu.Elísa B. Guðmundsdóttir Einar Falur Ingólfsson og Ingibjörg Jóhannsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir Knús!Elísa B. Guðmundsdóttir Gestir fylgdust grant með á opnun.Elísa B. Guðmundsdóttir Flestar myndanna koma úr kirkjum í Úkraínu.Elísa B. Guðmundsdóttir Logi Leó Gunnarsson ferskur.Elísa B. Guðmundsdóttir Gestir grandskoða verkin.Elísa B. Guðmundsdóttir Gestir skáluðu og skoðuðu.Elísa B. Guðmundsdóttir Oleksandra Shevliuga, sýningarstjóri sýningarinnar.Elísa B. Guðmundsdóttir Mynd af myndum.Elísa B. Guðmundsdóttir Yuliya Lytvynets Forstöðumaður Þjóðaristasafns Ukraínu hélt ræðu við opnunina.Elísa B. Guðmundsdóttir Lófaklapp við opnun.Elísa B. Guðmundsdóttir
Myndlist Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Sjá meira