Nýr formaður Breiðabliks: „Aðstaða margra deilda er sprungin“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. maí 2026 18:02 Pétur Hrafn Sigurðsson vill bæta aðstöðu Breiðabliks. Pétur Hrafn Sigurðsson var kjörinn formaður Breiðabliks á aðalfundi félagsins í gær.
Pétur var sjálfkjörinn og tekur við af Ásgeiri Baldurs sem gegnt hafði formennsku félagsins frá árinu 2022. Pétur hefur setið í aðalstjórn Breiðabliks frá árinu 2022 og var áður formaður körfuknattleiksdeildar Breiðabliks árin 2005-08. Pétur starfar sem sviðsstjóri getraunasviðs hjá Íslenskum Getraunum en var áður framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands um árabil. Frá vinstri: Ásgeir Haukur Guðmundsson, María Sæm Bjarkardóttir, Jóhann Þór Jónsson, Ingvi Þór Georgsson, Pétur Hrafn Sigurðsson formaður, Elvar Páll Sigurðsson. Á myndina vantar Elmu Björk Bjartmarsdóttir stjórnarkonu. breiðablik Reynsla Péturs úr stjórnmálum ætti að nýtast vel miðað við markmið hans sem formaður Breiðabliks. Pétur sagði nauðsynlegt að huga að uppbyggingu mannvirkja en hann var einmitt í byggingarnefnd Kópavogs, fyrst sem formaður en síðar sem almennur nefndarmaður sem bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. Hann er ekki á lista Samfylkingarinnar í komandi sveitastjórnarkosningum í Kópavogi. „Breiðablik hefur vaxið hratt á undanförnum árum og nú er svo komið að aðstaða margra deilda er sprungin. Nauðsynlegt er að huga að uppbyggingu mannvirkja til að mæta áframhaldandi vexti félagsins. Ég hlakka til að taka þátt í þeirri mikilvægu uppbyggingu í góðu samstarfi við Kópavogsbæ og allar deildir félagsins,“ segir Pétur í tilkynningu Breiðabliks. Ásgeir Baldurs, sem gegnt hefur formennsku félagsins frá árinu 2022, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Frá vinstri: Willum Þór Þórsson, fráfarandi formaður Ásgeir Baldurs, Hafsteinn Pálsson.breiðablik Á fundinum var Ásgeir sæmdur gullmerki ÍSÍ og UMSK fyrir störf sín í þágu félagsins og íþróttahreyfingarinnar. Við þessi tímamót sagði Ásgeir Baldurs: „Ég kveð formannsembættið í Breiðablik með þakklæti og stolti. Það hefur verið mér mikill heiður að fá að leiða þetta stórkostlega félag og vinna með frábæru fólki. Breiðablik er stærsta og öflugasta félag landsins og ástæðan fyrir því er fólkið sem stendur að félaginu — starfsfólk, sjálfboðaliðar og iðkendur. Ég óska nýkjörnum formanni, Pétri Hrafni, innilega til hamingju og er sannfærður um að félagið muni halda áfram að vaxa og dafna undir hans stjórn og Tönju Tómasdóttur framkvæmdastjóra. Áfram Breiðablik!“
Breiðablik Kópavogur Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er svo lúðalegt“ McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Dagskráin í dag: Toppslagur í Bestu deildinni Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Sjá meira