Oddvitaáskorunin: Klárar málin með símtölum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. maí 2026 21:00 Svanfríður hefur verið í stjórn ASÍ-UNG í 4 ár og formaður síðastliðið ár. Það eru mörg skemmtileg verkefni sem ASÍ-UNG á aðkomu að. Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir er oddviti Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. Ég heiti Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir og er oddviti Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. Ég er fædd og uppalin á Ísafirði og hef verið búsett í Hnífsdal með manninum mínum, Steinari Bjarka, undanfarin tíu ár. Saman eigum við tvær dætur, Júlíu Sif og Marín Rún. Í gegnum tíðina hef ég að mestu stundað þjónustustörf og þá unnið á bensínstöðvum, verslunum og við símsvörun og stafræna þjónustu. Nú stunda ég nám í viðskiptafræði ásamt því að vera formaður ASÍ-UNG, samtaka ungs launafólks innan ASÍ. Ég hef alltaf verið mjög félagslega þenkjandi, sem er eðlilegt komandi af verkafólki á svæðinu, og er búin að sitja í trúnaðarráði VerkVest í töluverðan árafjölda og vera mikið inni í verkalýðsbaráttunni. Markmið mitt með framboði til bæjarstjórnar er að skapa samfélag sem allir finni að þeir eigi hlut í. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Selfossi. Þar á ég fjölskyldu og finnst bæjarbragurinn álíkur og hér heima, sem ég elska.“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Ég kann ekki að velja uppáhalds, elska að lesa og les skáldsögur mikið.“ Svanfríður með systur sinni (Ingigerði) og móður (Ragnheiði). Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Ég myndi vilja skoða aðkeypta þjónustu sveitarfélagsins og endurskoða rekstur. Það er nauðsynlegt að skoða reglulega hvar framþróun hefur orðið, með það að markmiði að fjármagn sem sveitarfélagið á nýtist íbúum sem best.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Ég myndi vilja auka fjármagn hjá leikskólum og skólum sveitarfélagsins.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Á milli átaka og áhrifa.“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Oftast að hringja og klára málin bara. Skilaboð eru samt næs ef það má taka allan daginn.“ Dagsferð á sunnanverða Vestfirði í frábæru veðri. Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Engin sem ég veit um.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Fjármálum, til að stytta og einfalda námið aðeins.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Að stækka mannauðsdeild Ísafjarðarbæjar. Eða það að bæta við stöðugildum á leikskólann. Af einhverjum ástæðum er alltaf umdeilt að eyða fjármagni í fólk, en ég held að jákvæðu áhrifin af báðum ákvörðunum gætu verið gríðarleg fyrir bæjarfélagið.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Að finna titil á ævisöguna mína. Annars spjalla ég mikið við hana og finnst hún mjög nytsamleg, þó hún sé langt frá því að vera fullkomin.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Ég vil sjá hvaða flokkum við eigum stærstan sameiginlegan málefnagrundvöll með, það er nauðsynlegt til að geta átt gott samstarf. Við erum enn ekki komin á þann stað að útiloka neinn og það er gott fólk í öllum flokkum hér á svæðinu.“ Fjölskyldan í góðum gír síðastliðið haust - Steinar, Svanfríður, Júlía Sif og Marín. Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Þau eru mjög mörg, en helst dettur mér í hug að hafa ekki staðið nægilega sterkt með mínum skoðunum í gegn um árin. En mistökin móta manninn, það er ekki hægt að læra án þeirra.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Umhverfið, það er enginn staður með eins fallega náttúru og við höfum hérna.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Örnu kaffiskyr með karamellubragði og seríos.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Erfiðleikar við að viðhalda eignum og umhverfi. Og hægvirk stjórnsýsla þar sem hún þarf ekki að vera það.“ Svanfríður og Steinar í tónleikaferð síðasta sumar. Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Ég held það sé hægt að gera ansi margt. Það verður hægt að ljúka við að byggja leikskóla, klára aðalskipulagið, byggja íbúðir með óhagnaðardrifnum félögum, koma byggingu á unglingadeild í skipulagningu, bæta starfsumhverfi leikskólakennara og þó greiða niður skuldir og styrkja bæjarfélagið þannig.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Þessa dagana er það Fever dream með Alex Warren.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Sala eigna bæjarins, t.d. leiguíbúða og Eyrar. Ég skil fjárhagslega hvata þar að baki, en tel að það hefði verið hægt að fara aðrar leiðir.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Ég á bara eitt gælunafn, Svanna, sem er uppáhaldið mitt af því það er sérstakt og kemur beint frá ömmu minni.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Mér er meinilla við að gera loforð sem ég get ekki staðið við. Það er hægt að leggja fulla trú á það að ég verði í fimmta gír næstu ár að reyna að keyra kosningastefnuna okkar í gegn.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Ísafjarðarbær Mest lesið Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Lífið Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Lífið Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Lífið Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Bíó og sjónvarp Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Lífið Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Lífið samstarf Fleiri fréttir „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Sjá meira