Eyrir fjárfestir í hollensku landeldisfyrirtæki og verður stærsti hluthafinn
Nýtt félag sem Eyrir sem hefur stofnað, með áherslu á áherslu fjárfestingar í landeldisfyrirtækjum á síðari stigum sprotaþróunar eða á fyrstu vaxtarskeiðum sínum, hefur klárað sína fyrstu fjárfestingu í hollenska fiskeldisfyrirtækinu Kingfish. Félag Eyris, leitt af Árna Odda Þórðarsyni, hefur skuldbundið sig til að leggja fyrirtækinu til um fimmtán milljónir evra samhliða víðtækri fjárhagslegri endurskipulagningu og verður stærsti hluthafinn.
Tengdar fréttir
Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest
Á aðalfundi Eyri Invest hf. í gær samþykktu allir hluthafar félagsins tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa. Endurgjald lækkunarinnar er í formi hlutabréfa í JBT Marel Corporation og Fræ Capital hf. Feðgarnir Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson, stofnendur félagsins, eru nú einu hluthafar félagsins með jafnan eignarhlut.