„Það er komin pressa“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. maí 2026 14:16 Sigtryggur Arnar segist líða best undir pressu og nú er hún komin. Vísir/Jón Gautur Sigtryggur Arnar Björnsson segir Tindastól geta tekið margt jákvætt með sér úr síðasta leik inn í leik kvöldsins gegn Grindavík. Þó hann sé að sjálfsögðu ekki ánægður með tapið þar þá líður honum best þegar pressan er mest.
Liðin mætast í öðrum leik úrslitaeinvígis Bónus deildar karla í Síkinu í kvöld. Grindavík marði 85-80 sigur í fyrsta leiknum eftir frábæran fyrri hálfleik. Tindastóll átti gott áhlaup í seinni hálfleik og var nálægt því að stela sigrinum en tókst það á endanum ekki. „Mér leið vel eftir fyrsta leikinn. Við byrjuðum illa og grófum okkur í smá holu en svo fundum við einhvern takt. Mér fannst við vera komnir með smá tök á þeim, þannig að eftir leikinn hugsaði ég bara hvað við gætum tekið margt gott úr þessu yfir í næsta leik,“ sagði Sigtryggur Arnar fyrir leik kvöldsins. „Við vorum ekki að hitta úr skotum. Við vorum að tapa boltanum alltof auðveldlega. Við vorum að gefa frá okkur sóknarfráköst. Þetta eru hlutir sem er frekar auðvelt að laga og ég held að við séum á fínum stað,“ bætti Sigtryggur við. Grindavík gerði ekkert óvænt, Stólarnir voru bara slakir Grindavík var með fimmtán stiga forystu í hálfleik í síðasta leik. Á þeim tímapunkti leit út fyrir að Grindvíkingar myndu vinna öruggan sigur en Sigtryggur segir ekkert hafa komið honum á óvart í upplegi Grindavíkur. Stólarnir hafa bara ekki mætt nógu gíraðir til leiks. „Við vorum bara svo hikandi, við vorum sjálfir ekki klárir. Það kom ekkert á óvart, við vissum að þeir myndu mæta með mikla orku og spila þessa skiptivörn sem er erfitt að sækja á, sérstaklega ef þú ert hikandi. Það kom mest á óvart hvað við mættum illa í leikinn sjálfir.“ Líður best undir pressu Tindastóll er 1-0 undir og verður í mjög slæmri stöðu ef liðið tapar á heimavelli í Síkinu í kvöld. Sigtryggur segir tapið í síðasta leik hafa verið sárt en honum líður jafnvel betur undir pressu. „Við viljum finna fyrir pressu, það nær allavega því besta úr mér. Ef það er engin pressa þá finnst mér erfiðara að gíra mig upp í leiki en ef það er pressa þá næ ég fullum fókus. Ég veit hvað ég þarf að gera og það gefur mér aukaorku þegar það er pressa. Það er komin pressa og það er pressa sem við viljum hafa á okkur.“ Klippa: „Gefur mér aukaorku þegar það er pressa“ Það ætti þá að hjálpa Sigtryggi að Sauðárkrókur er einhver körfuboltaóðasti bær landsins og bæjarbúar setja mikla pressu á Tindastólsliðið. „Maður finnur hvað þetta skiptir marga miklu máli. Maður getur haft áhrif á líf fólksins í bæjarfélaginu. Maður finnur hvað þetta er mikilvægt og það er það sem mér finnst skemmtilegast við þetta.“ Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan en nánar verður rætt við Sigtrygg Arnar í Sportpakka Sýnar um leik kvöldsins og meiðslin sem hann hefur verið að glíma við en segist hafa náð sér hundrað prósent af. Leikur Tindastóls og Grindavíkur verður svo í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland frá 18:30.
Bónus-deild karla Tindastóll UMF Grindavík Mest lesið „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Íslenski boltinn Liverpool og Barcola náð samkomulagi Fótbolti Áhorfendur í áfalli eftir að leikmaður hrundi niður göng Fótbolti Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Fótbolti Ótrúlegt innkast varð að marki Fótbolti KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Íslenski boltinn Gefur lítið fyrir orð kollega síns: „Ég skil ekki svona“ Fótbolti Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Fótbolti Mikil eftirvænting vegna endurkomu Ingebrigtsen Sport Fleiri fréttir Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Sjá meira