Golf

Svíinn sjóð­heitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn

Sindri Sverrisson skrifar
Ludvig Åberg hrökk svo sannarlega í gang á síðustu sjö holunum í dag og fékk fjóra fugla.
Ludvig Åberg hrökk svo sannarlega í gang á síðustu sjö holunum í dag og fékk fjóra fugla. Getty/Andrew Redington

Hinn 26 ára gamli Svíi Ludvig Åberg var sjóðheitur á seinni níu holunum í dag og stimplaði sig inn í toppbaráttuna á PGA-meistaramótinu í golfi. Norður-Írinn Rory McIlroy kom sér sömuleiðis í gang eftir skelfilegan fyrsta hring en það eru tveir Bandaríkjamenn sem leiða.

Alex Smalley og Maverick McNealy eru efstir eftir fyrstu tvo hringina, á -4 höggum, fjarri niðurskurðarlínunni en þeir sem léku hringina tvo á samtals +5 höggum eða verr eru hins vegar nú úr leik.

Þá tilfinningu þekkir Åberg vel eftir að hafa fallið snemma úr leik á mótinu bæði í fyrra og hitteðfyrra. Hann var samtals á +2 höggum þegar hann átti sjö holur eftir í dag en fékk þá þrjá fugla í röð og alls fjóra fugla, og endaði hringinn því á -4 höggum.

Åberg er því í hópi sjö kylfinga sem eru jafnir í 9. sæti á -2 höggum, eða tveimur höggum á eftir efstu mönnum. 

Í þeim hópi eru einnig til að mynda Scottie Scheffler, sem vann mótið af öryggi í fyrra, Cameron Young og Justin Thomas.

Sjö höggum betri hringur hjá McIlroy

Chris Gotterup átti þó besta hringinn í dag en hann lék á -5 höggum og er samtals á -3, jafn fjórum í þriðja sæti. Í þeim hópi er einnig Þjóðverjinn Stephan Jaeger sem afrekaði það að fá par á öllum átján holunum í dag.

McIlroy er einnig með í baráttunni en þó á samtals +1 höggi, þrátt fyrir góðan hring í dag, því hann lék á +4 höggum á fyrsta hring í gær. Hring sem McIlroy hafði einfaldlega sagt drullulélegan (e. „shit“).

Á meðal þeirra sem lentu undir niðurskurðarhnífnum var Bryson DeChambeau sem lék holurnar 36 á +7 höggum og var því nokkuð frá því að komast áfram. Hann féll einnig út snemma á The Masters.

Stöðuna á PGA-meistaramótinu má sjá með því að smella hér.

Keppni heldur áfram næstu tvo daga og eru beinar útsendingar á Sýn Sport Viaplay sem hefjast klukkan 17 hvorn dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×