Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. maí 2026 09:33 Stephon Castle átti stórleik. David Berding/Getty Images Bakverðir San Antonio Spurs áttu stórleik við hlið stóra mannsins Victors Wembanyama er liðið tryggði sig áfram í úrslit Vesturdeildar NBA með 139-109 sigri gegn Minnesota Timberwolves í nótt.
Spurs kláruðu seríuna þannig 4-2 í sex leikjum og mæta ríkjandi meisturum Oklahoma City Thunder í úrslitum vestursins. Fyrsti leikur þeirra verður á mánudagskvöld. Bakverðirnir Stephon Castle, De‘Aaron Fox og Dylan Harper áttu stórleik í nótt og skoruðu rúmlega helminginn af 139 stigum Spurs. Samkvæmt ESPN var þetta þriðji stigahæsti leikur Spurs í sögu úrslitakeppninnar. Castle var stigahæstur með 32 stig, þar af fimm þrista, auk 11 frákasta og 6 stoðsendinga. Fox skoraði 21 stig úr 80 prósent skotnýtingu og Harper setti 15 stig á töfluna. "It's definitely a blessing."Stephon Castle (21y, 197d) on becoming the youngest player in NBA history to record 30+ PTS, 10+ REB, 5+ AST, and 5+ 3PM in a single postseason game 👏The Spurs win Game 6 on the road and advance to the Western Conference Finals for the first time… https://t.co/72hnTjA5ZQ pic.twitter.com/VTrcdrVmna— NBA (@NBA) May 16, 2026 Castle varð aðeins fimmti leikmaðurinn í sögu Spurs til að ná að minnsta kosti 30 stigum, 10 fráköstum og 5 stoðsendingum í útsláttarleik, og slóst þar með í hóp með Manu Ginobili, Tim Duncan, Robinson og George Gervin. Ljóst er að andstæðingar Spurs geta ekki bara einblínt á Victor Wembanyama í vörninni með svona öfluga bakverði fyrir aftan hann. Wembanyama skilaði samt 19 stigum, 6 fráköstum og 3 vörslum. SPURS WIN THE SERIES, 4-2 🚨▪️ 38-point win in Game 2▪️ Wemby erupts for 39 PTS, 15 REB, and 5 BLK in Game 3▪️ Wemby records 27 PTS, 17 REB, and 5 AST in Game 5▪️ Castle drops 32 PTS, 11 REB, and 6 AST in Game 6San Antonio advances to the Western Conference Finals for the… pic.twitter.com/kiWoeB48Qv— NBA (@NBA) May 16, 2026 Deildarmeistarar Detroit héldu sér á lífi Detroit Pistons björguðu sér aftur frá útslætti með 115-94 sigri gegn Cleveland Cavaliers. Serían er á leið í oddaleik en Detroit hafði lent 3-1 undir. Pistons hafa verið lunknir við að halda sér á lífi og alls unnið fjóra útsláttarleiki í þessari úrslitakeppni. SMOOTH. OPERATOR. Cade Cunningham and the Pistons force Game 7 🔥 pic.twitter.com/f7VKXUyuVo— SportsCenter (@SportsCenter) May 16, 2026 Cade Cunningham var stigahæstur með 21 stig og fimm þriggja stiga körfur, en hann fékk góða hjálp. Jalen Duren átti sinn besta leik í einvíginu með 15 stig og 11 fráköst. Daniss Jenkins skoraði 15 stig og Paul Reed var með 17 stig af bekknum. Duncan Robinson, sem missti af síðasta leik vegna meiðsla í mjóbaki, setti niður fjórar þriggja stiga körfur og skoraði 14 stig af bekknum.
NBA Mest lesið Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira