Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Jakob Bjarnar skrifar 18. maí 2026 10:44 Ómar Yamak og Þórir Rafnar Rúnarsson glaðbeittir en þeir ganga nú til liðs við Vettvang. aðsend Vefstofan Vettvangur hefur ráðið Þóri Rafnar Rúnarsson og Ómar Yamak í hönnunarteymi fyrirtækisins. Í tilkynningu kemur fram að þeir hafi báðir víðtæka reynslu í hönnunargeiranum. „
Munu þeir starfa þvert á starfsemi systurfyrirtækisins Apparatus, sem sérhæfir sig í þróun app-lausna.“ Þórir kemur inn í hlutverk teymisstjóra hönnunar (e. design lead), en hann er stofnandi hönnunarstofunnar Snowhouse Studio og hefur á undanförnum árum unnið að fjölda alþjóðlegra verkefna á sviði stafrænnar hönnunar og veflausna. Meðal fyrirtækja sem Þórir hefur unnið með eru Wave, Vanta, DBT Labs, Veed, Mara Holdings og School of Motion. Í nýju hlutverki mun Þórir nýta alþjóðlega reynslu sína til að styðja við áframhaldandi vöxt hönnunardeildar systurfyrirtækjanna, þar sem lögð er rík áhersla á markmiðadrifna nálgun og árangur í rekstri. Ómar kemur einnig inn í hönnunarteymið en hannhefur starfað að UI/UX hönnun síðan 2018. Ómar kom meðal annars að því að þróa Upcado spjallmennakerfið hjá Startup Reykjavik, sem gerði íslenskum fyrirtækjum kleift að smíða eigin Facebook Messenger spjallmenni. Hann stofnaði síðar vefstofuna Mojo og hannaði þar lausnir fyrir fjölbreytta starfsemi. Ómar er nýkominnfrá Kyrrahafseyjunni Balí þar sem hann starfaði sem Jiu-Jitsu þjálfari. Vettvangur og Apparatus vinna náið saman að þróun vef- og applausna fyrir leiðandi fyrirtæki eins og Domino’s, KSI, Lyfju, Atlantsolíu og Eimskip og hafa hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verkefni sín, hérlendis sem erlendis. Í tilkynningu er haft eftir Elmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Vettvangs, að með stækkun og styrkingu teymisins verði lögð ríkari áhersla á að þróa notendaviðmót og þjónustu sem mætir þörfum notenda á einfaldan, skýran og mannlegan hátt. „Á tímum þar sem gervigreind gegnir sífellt stærra hlutverki í þróun stafrænna lausna, leggur teymið sérstaka áherslu á að halda í mannlega nálgun í hönnun. Við trúum því að góð hönnun snúist ekki eingöngu um tækni, heldur um skilning á fólki. Markmið okkar er að skapa lausnir sem eru ekki bara skilvirkar, heldur einnig skiljanlegar, aðgengilegar og auðveldar í notkun,“ er haft eftir Elmari.
Vistaskipti Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira