Hættum að hvísla um loðnu og gætum hagsmuna íbúa Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar 20. maí 2026 07:03 Fyrir nokkrum vikum fékk ég svar við fyrirspurn sem ég lagði fyrir atvinnuvegaráðherra um meðalverð á landaðri loðnu til frystingar. Tilgangurinn var að grennslast fyrir um hvort munur væri á því verði sem fengist fyrir hana annars vegar hér á Íslandi og hins vegar í Færeyjum. Ástæðan var sú að margir með góða þekkingu á sjávarútvegi höfðu fullyrt við mig að þarna væri mikill munur. Ég viðurkenni að svarið kom mér í opna skjöldu. Meðalverð á landaðri loðnu til frystingar er 80,64 krónur á kíló á Íslandi á meðan verðið í Færeyjum var 250 krónur. Loðna sem lönduð er í Færeyjum er rúmlega þrisvar sinnum verðmætari en loðna sem er lönduð á Íslandi. Þar skiptir engu þótt um sé að ræða loðnu úr sömu loðnutorfunni. Í ofanálag er íslenska verðið meðalverð. Sumar útgerðir sem stunda loðnuveiðar eru að borga enn minna fyrir loðnuna, og allt niður í tæplega 68 krónur á kílóið. Þær útgerðir eru því að borga rétt yfir fjórðung af því sem Færeyingar borga fyrir nákvæmlega sömu loðnu. Mikil áhrif á samfélagið Þetta skiptir máli í margháttuðu samhengi. Loðnukvóti eins og sá sem úthlutað var í upphafi árs getur, að mati forsvarsmanna útgerða sem veiða mikið af honum, skilað allt að 30 milljörðum króna í þjóðarbúið. Stærstu útgerðir á Íslandi eiga margar hverjar alla virðiskeðjuna sína, þar á meðal veiðar og vinnslu, og geta ráðið því að einhverju leyti hvar virðið er tekið út. Sé verið að borga langt undir raunvirði fyrir loðnuna þegar henni er landað þá hefur það bein áhrif á tekjur ríkis, sveitarfélaga og sjómanna. Áhrifin á ríkissjóð eru augljós og neikvæð. Ef loðnan er verðlögð á einn þriðja eða einn fjórða af því sem fæst fyrir hana hjá nágrönnum okkar þá hefur það bein áhrif til lækkunar á veiðigjöldum sem ákvarðast af verðinu sem landað er á. Skerðing á mögulegum lífsgæðum íbúa Áhrifin á sveitarfélög eru ekki síður mikil. Lægra uppgefið aflaverð þýðir minni tekjur til hafnarsjóða, t.d. í Fjarðabyggð, Norðfirði, Eskifirði og á Fáskrúðsfirði. Þarna gæti verið um stórar upphæðir að ræða fyrir sveitarfélög sem eru fámenn í stóra samhenginu og gætu þær skipt miklu um getu þeirra til að ráðast í nauðsynlegar fjárfestingar í innviðum og þjónustu. Þá eru ótalin áhrifin á sjómenn. Laun þeirra byggjast á hlutdeild í verðmæti aflans eins og hann er metinn þegar honum er landað. Þegar uppgefið verð er jafn lágt og raun ber vitni þá skerðist hlutur þeirra með beinum hætti. Að skerða verulega tekjur fólksins sem sækir auðlindina hefur auk þess áhrif á útsvarstekjur sveitarfélaganna sem það býr í. Þar sem flokkurinn stýrir, þar er þagað Það má ekki vera uppi efi um að uppgjör á nýtingu sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar fari fram með eðlilegum hætti. Fyrir liggur í lögum að nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar og á þeim grundvelli á að skipta með sér arðseminni af nýtingu þeirra í samræmi við vilja löggjafans hverju sinni. Ég saknaði þess að heyra hátt og snjallt í þeim sveitarfélögum sem verða fyrir mestum tekjumissi vegna mögulegrar undirverðlagningar á loðnu þegar svarið við fyrirspurn minni birtist. Ég hef raunar verið að bíða eftir því alla tíð síðan að þau rísi upp á afturlappirnar og krefjist svara frá útgerðunum sem starfa og landa loðnu í þeirra sveitarfélagi. Það hefur enn ekki gerst. Fyrir liggur að það er mikil nálægð milli Sjálfstæðisflokksins og stórútgerða landsins, sem flokkurinn varði með kjafti og klóm í veiðigjaldaumræðunni og beitir sér nú með sambærilegum hætti varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið. Það þarf því kannski ekki að koma mikið á óvart að þau sveitarfélög sem um ræðir um allt land sem eru sennilega að verða af miklum tekjum vegna undirverðlagningar á loðnu og eiga það sameiginlegt að Sjálfstæðisflokkurinn er við völd. Það dugar ekki að hvísla Þegar undir eru jafn miklir almannahagsmunir og miklar tekjur sem eiga að renna í ríkissjóð til að byggja upp samfélagið, til sveitarfélaga svo þau geti byggt upp innviði og þjónustu og til hetja hafsins sem leggja á sig erfiðisvinnu og mikla fjarveru til að veiða fiskinn, þá dugar ekki að hvísla. Hinar vinnandi stéttir, og almenningur allur, eiga mikið undir í þessu máli og eiga rétt á áheyrn. Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að fylgja þessu máli eftir og veita þeim þá rödd sem þau eiga skilið. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eydís Ásbjörnsdóttir Loðnuveiðar Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun