Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Stefán Árni Pálsson skrifar 20. maí 2026 11:31 Guðrún krafðist þess að sonur hennar yrði skoðaður náið eftir ítrekuð veikindi. Eftir mikið stapp fékk hún sitt í gegn. Guðrún Jóna Hreggviðsdóttir er gift fjögurra barna móðir sem kynntist eiginmanni sínum og barnsföður árið 2000. Börnin eignuðust þau frá 2001 til 2020 en síðast kom Styrkár, sem er sex ára í dag. Upplifunin með fyrstu þrjú var eðlileg, bæði skemmtileg og erfið, eins og flestir þekkja, en eitthvað var öðruvísi með Styrkár. Óvanalega óvær var hann. „
Ég sef rosalega lítið og var alveg farin að leita svolítið oft til lækna og hvort það væri hægt að fá eitthvað bara til þess að hjálpa honum að sofa og ég bara líka alveg búin á því. Það var meira að segja einn læknir sem nefndi það, þegar hann var átta mánaða, að hann væri nú örugglega bara með ADHD,“ segir Guðrún í Íslandi í dag í vikunni en Sindri Sindrason ræddi við hana. Styrkár kemst inn á leikskóla 16 mánaða og þá byrjaði hann að veikjast óvenjumikið. „Hann fékk svona kinnholusýkingar, eyrnabólgur, lungnabólgur, bara alls konar og hann nær eiginlega ekkert að mæta í leikskóla, bara kannski einn, tveir dagar og svo er ég alltaf bara með hann heima,“ segir Guðrún og heldur áfram. „Svo fer það að vera þannig að hann fer í rör í eyrun og þá verða hlutirnir aðeins skárri og hann fær í það minnsta ekki eyrnabólgur. Svo bara heldur þetta áfram, alltaf bara sýkingar og hann er að fá sýklalyf bara í hverjum mánuði og nær aldrei að jafna sig.“ Alvarlegar sýkingar hvað eftir annað Við tóku örar spítalaferðir því Styrkár fékk alvarlegar sýkingar hvað eftir annað. Hann þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör, nema að hann væri mögulega dæmigert Covid-barn, nýbyrjaður á leikskóla og kannski með astma. „Ég var eitthvað að deila í Instagram story, öllum þessum veikindum. Ég er bara, þú veist, þreytt og buguð móðir. Svo er það ein mamma sem sendi mér bara á Instagram skilaboð og segir við mig að þetta sé ekki eðlilegt. Hún spyr mig hvort ég sé búin að biðja lækni um að mæla IGG í honum sem er eitt af mótefnum líkamans varðandi sýkingavarnir. Ég bið astmalækninn hans um það. Hann hafði nú ekkert trú á því að þetta væri nú ekkert, en ég var svona svolítið ákveðin,“ segir Guðrún og bætir við að læknirinn hafi mestmegnis samþykkt mælinguna til að friða hana sem móður. „Hann er mældur og það kemur í ljós að hann er bara alveg tómur, hann er ekki með neinar varnir og ef hann fær bara þú veist, einhverjar venjulegar sýkingar þá verða þær bara rosalega slæmar.“ Læknar höfðu þó trú á að þetta kæmi mögulega þegar hann yrði þriggja ára, höfðu allavega ekki miklar áhyggjur en þetta þurfti að meðhöndla. „Hann fer þá í lyfjagjafir, svona mótefnalyfjagjafir, á Barnaspítalanum og hann fer þá sem sagt á fjögurra vikna fresti á Barnaspítalanum og þá bara fær hann vörn í sig. Hann getur þá lifað nokkuð eðlilegu lífi, farið í leikskólann, en það þarf alltaf að passa vel upp á Styrkár.“ Styrkári er sex ára í dag og honum líður vel vegna þess að hann fékk meðferð ungur. Hann spilar fótbolta, er í fimleikum en er þó með astma. „Hann er að fara á fjögurra vikna fresti og þá er hann oft að fara að detta í veikindi og oft er maður svona að passa kannski að hann sé ekki að fara í þú veist afmæli eða Kringluna eða eitthvað þannig.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Mest lesið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Sonur Cindy Crawford er látinn Lífið Sjóðurinn tómur Lífið Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Lífið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Tónlist Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Lífið Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Lífið Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Fleiri fréttir Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Sjá meira