Bournemouth búnir að tryggja sér Evrópusæti Andri Broddason skrifar 20. maí 2026 11:01 Bournemouth virkilega sáttir með Evrópusætið Vísir/Getty Bournemouth er búið að tryggja sér sæti í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir jafntefli í leik liðsins á móti Manchester City í gærkvöldi.
Bournemouth er sem stendur í sjötta sæti fyrir síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar og keppni í Evrópu því komin í hús. Baráttan er hins vegar ekki búin þar sem liðið hefur enn þá tækifæri til að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu. Aston Villa á leik gegn Freiburg í úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Ef Villa sigrar þann leik og endar í fimmta sæti í ensku úrvalsdeildinni færist Meistaradeildarsæti ensku niður í sjötta sæti deildarinnar þar sem Bournemouth stendur. Villa er í fjórða sæti deildarinnar og tekur á móti Manchester City í lokaleik umferðarinnar. Ef Villa tapar þeim leik og Liverpool vinnur sinn leik á móti Brentford endar Villa í fimmta sæti sem gerir það að verkum að sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar fær keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu. Einnig getur Bournemouth náð fimmta sætinu ef þeir sigra Nottingham Forest í lokaleik tímabilsins en þá þarf Liverpool að tapa stórt þegar þeir taka á móti Brentford á sama tíma. Þá yrðu stigin jöfn milli liðanna en Liverpool er með betri markatölu sem gerir þetta að ólíklegri möguleika. Evrópudeildin er tryggð fyrir Bournemouth en þá dreymir um sæti í Meistaradeild Evrópu og þeir vona þá að Aston Villa hjálpi þeim í þeirri vegferð í kvöld en úrslitin á lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar þurfa líka að fara þeim í hag. Úrslitaleikur Evrópudeildarinnar er sýndur á Sýn Sport klukkan 18:45.
Enski boltinn AFC Bournemouth Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra? Fótbolti Fleiri fréttir „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Króatía - England | Er enska liðið búið að finna taktinn? Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra? Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Afmælisbarnið dregur sig úr landsliðinu Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Frakkland - Ítalía | Halda Frakkar sigurgöngunni áfram? Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Sjáðu hvernig Portúgalar fóru með Dani eftir brotthvarf Ronaldo „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu City-menn búnir að áfrýja Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Sjá meira