Vogunarsjóðsrisi fjárfestir í íslenskum líftæknifélögum fyrir milljarða
Bandaríska félagið Millennium Management, einn stærsti og áhrifamesti vogunarsjóður í heimi, er kominn í hóp stærstu hluthafa tveggja skráðra íslenskra líftæknifélaga eftir að hafa stækkað stöðu sínu verulega á fyrstu mánuðum ársins með kaupum fyrir marga milljarða.
Tengdar fréttir
Hvað segja greinendur erlendra banka um stöðu og horfur Alvotech?
Eftir að hafa hríðfallið á fáeinum mánuðum þá endurspeglar núverandi hlutabréfaverð Alvotech að stórum hluta þær tafir sem hafa orðið á markaðssetningu nýrra lyfja í Bandaríkjunum og skýrari mynd þarf að fást á framhaldið áður en búast megi við snörpum viðsnúningi, að mati sérfræðinga. Greinendur erlendra fjármálastofnana hafa á síðustu dögum verið að uppfæra verðmöt sín á Alvotech, sem flestir telja að sé undirverðlagt á markaði, og sumir eru „hóflega“ bjartsýnir á að félagið sé að snúa vörn í sókn á meðan aðrir undirstrika að óvissan er enn mikil.
Bandarískir sjóðir fyrirferðamestir þegar Oculis kláraði 110 milljóna dala útboð
Líftæknilyfjafélagið Oculis hefur klárað hlutafjárútboð upp á samtals um 110 milljónir Bandaríkjadala en hið nýja fjármagn kemur nánast alfarið frá erlendum fjárfestingarsjóðum. Fjármögnuninni er ætlað að hraða klínískri þróunarvinnu á einu af þróunarlyfi félagsins við bráðri sjóntaugabólgu en eftir að hafa fengið jákvæða endurgjöf frá FDA fyrr í þessum mánuði hækkuðu bandarískir greinendur verulega verðmat sitt á Oculis.
Hækka verðmat á Oculis um fjórðung samhliða minni áhættu við lykilrannsókn
Með nýju samkomulagi sem Oculis hefur gert við FDA vegna lykilrannsóknar sem snýr að þróun lyfs til meðhöndlunar við sjóntaugbólgu dregur meðal annars mjög úr reglugerðaráhættu, að sögn bandarískra greinenda, og hefur verðmat á félaginu verið hækkað um nærri fjórðung.