Lýðræðislegt, sanngjarnt, gott Alex Leó Kristinsson skrifar 21. maí 2026 18:02 Nú hafa sveitarstjórnarkosningar runnið sitt skeið. Meirihlutaviðræður eflaust víða hafnar, ef þeim er ekki þegar lokið. En eftir sit ég hugsi sem svo oft áður þegar kosningum er lokið. Hugsi um kosningakerfið okkar, kerfi sem er lýðræðislegt, sanngjarnt, gott. Eða hvað? Það stingur mig alltaf þegar ég heyri af því að einhver hafi kosið taktískt. Taktísk kosning. Þvílík gjaldfelling á annars æðislegu lýðræði. Margir hafa eflaust gerst sekir um að kjósa þann flokk sem ríkir í öðru sæti einkum til þess að atkvæðið vegi sem mest gegn flokknum sem er í fyrsta sæti. Í slíkum tilfellum er verið að kjósa ólýðræðislega, í tilraun til að taka virkan þátt í lýðræðinu. Það er þó ekki hægt að skamma taktíska kjósandann of mikið, enda er hann einfaldlega að svara því kerfi sem við notumst við. Kerfi sem virðist kalla eftir því að kosið sé gegn eigin sannfæringu. Ekki bætir úr skák þegar skoðanakönnunum er linnulaust troðið upp á kjósandann. Skoðanakannanir, þær sem sýna hvernig þjóðin hyggst kjósa, stuðla að taktískri atkvæðagreiðslu. Fólk sér fylgi flokkanna, sér hvaða flokkur er í forystu, og greiðir atkvæði í takt við það. Með þessu er brugðið fæti fyrir lýðræðinu vegna þess að atkvæðið fer ekki á þann flokk sem viðkomandi vill helst styðja, heldur þann flokk sem er skárri af tvennu illu. Fólk kýs taktískt af ótta við að atkvæði sitt falli niður dautt, ef svo má segja. Það sem gerist óhjákvæmilega er að sumir flokkar fá lítið fylgi og ná því engum frambjóðanda inn og þar með eru öll þau atkvæði sem sá flokkur hafði, dauð. Ef þessi flokkur fékk 5% fylgi, þá er 5% af kjósendum ekki lengur tekið mið af. En líkt og áður segir er þetta óumflýjanlegur fylgifiskur af því kosningakerfi sem Ísland notast við í dag. Áhrif dauðra atkvæða, og jafnframt annar stór galli við núverandi kerfi, má sjá skýrt ef rýnt er í forsetakosningar. Árið 2024 tókust margir á um forsetastólinn en Halla Tómasardóttir bar sögulegan sigur úr býtum. Alls voru 12 í framboði og aðeins einn forsetastóll í boði og því fullt af atkvæðum sem duttu niður dauð þegar upp var staðið. Raunar fór það svo að Halla T vann með einungis 34,1% atkvæða. Ef lýðræði mætti skilgreina með orðunum "meiri hlutinn ræður", er hér augljós galli á ferð. Forseti vor, fékk ekki meirihluta af atkvæðum, heldur stærsta hlutann. Í lýðræðisríki ætti að vera skylda fyrir forseta að fá atkvæði hjá yfir 50% þeirra sem kjósa. Það voru fleiri sem kusu ekki Höllu heldur en sem kusu hana. Þetta hefur vitaskuld ekkert með persónu Höllu T að gera. Hún fékk ekki meirihluta atkvæða sökum þess að of margir voru í framboði, atkvæðin dreifðust á of marga og í kjölfar voru dauð atkvæði of mörg. Fjórum árum áður, árið 2020, voru einungis tveir í framboði og þar fékk Guðni Th. 92,2% atkvæða en fjórum árum fyrir það, árið 2016, fékk Guðni Th. einungis 38,51% atkvæða. Það er því öllum ljóst að þetta er ekki persónubundið, þetta er hvimleiður fylgikvilli þess kosningakerfis sem notað er hérlendis. Dauð atkvæði, taktísk og jafnframt ólýðræðisleg kosning, fals-meirihluti. Erum við dæmd til að sitja uppi með slíkt kosningakerfi? Þvert á móti. Víða er notast við kosningakerfi þar sem hver og einn kjósandi raðar valmöguleikunum í forgangsröð, svokölluð forgangs kosning (e. preferential voting). Með þessum hætti deyja atkvæðin ekki heldur færast yfir á þann valmöguleika sem kjósandinn setti í annað sæti, og svo koll af kolli. Slíkt kerfi tryggir það að sá sem fær flest atkvæði fái raunverulega 50% atkvæða eða meira. Glöggir taka eftir að þetta kerfi er ekki gallalaust, en ber þó engan galla sem núverandi kerfi hefur ekki þegar í för með sér. Það gefur augaleið að eitt og annað þurfi að breytast í tengslum við kosningar ef skipta á um kerfi. Það er þó algeng mýta að kosningin þurfi að fara fram rafrænt, þess er ekki þörf. Talningin mun eflaust taka lengri tíma, sem skilar sér ef til vill í skemmtilegri og spennuþrungnari kosningavökum (annars er tilvalið að breyta í leiðinni talningarreglum svo hægt sé að stytta biðina eftir fyrstu tölum). Að auki er vert er að nefna að með forgangs kosningum þarf að breyta örlítið hvernig reiknað er fjöldi sæta sem hver og einn flokkur fær í stjórn, t.a.m. í sveitastjórnarkosningum, það er þó minniháttar fyrirhöfn þegar á heildina er litið. Talningin sjálf er mjög einföld, helsta breytingin er sú að þörf er á nokkrum talninga umferðum. Til útskýringar skal forsetakosning vera tekin sem dæmi: Gefum okkur að fimm eru í framboði. Á kjördag fara landsmenn og forgangsraða frambjóðendum, í fyrsta sæti setja þeir þann frambjóðanda sem þeir hallast mest að, í annað sæti þann næsta og svo koll af kolli. Í fyrstu talninga umferð er talið fyrsta sætið á hverjum greiðsluseðli. Að því loknu, ef enginn frambjóðandi hefur fengið 50% atkvæði eða fleiri, fer fram önnur talninga umferð. Í umferð tvö eru atkvæðin á bakvið frambjóðandann með minnsta fylgið talin aftur, nú með áherslu á annað sætið á hverjum greiðsluseðli. Með þeim hætti hafa þessi atkvæði, sem annars hefðu dáið, yfirfærst á næsta val hjá hverjum og einum. Umferð tvö er svo endurtekin þar til einn frambjóðandi fær yfir 50% atkvæði og sigrar. Undirritaður biðlar til lesenda að kynna sér forgangs kosningar og fyrirkomulag þess, eitt vinsælasta kerfið kallast Eitt Yfirfæranlegt Atkvæði (e. Single Transferable Vote), slíkt kosningakerfi er notað meðal annars í Ástralíu og mörgum stöðum í Bandaríkjunum, Kanada, og Bretlandi. Fyrir forvitna, notar Ísland kerfi sem kallast D'Hondt og hefur það kerfi lengi verið gagnrýnt og verið kallað versta kosningakerfið í hlutfallskosningum. Ef skipt er um kosningakerfi, líkt og ofangreind tillaga kveður á, myndu dauð atkvæði heyra sögunni til og allir taka virkan þátt í lýðræðinu. Stuðlað er að sanngjarnari atkvæðagreiðslu, af því fólk þarf ekki að kjósa taktískt. Taktísk atkvæðagreiðsla er að vissu leyti innbyggð í forgangs kosningu, með því að líkja eftir mörgum kosningum þar sem minnsti flokkurinn dettur úr leik. Niðurstaðan er skýrari sýn á hvað þjóðin vill. Með forgangs kosningu er ekki bara kosið um hvaða flokk maður vill, heldur einnig hvaða flokk maður vill ekki, og allt þar á milli. Núverandi kerfi stuðlar að því að fólk ljúgi til um hvað það raunverulega vill. Þegar öllu er á botninn hvolft, getur slíkt kerfi seint talist lýðræðislegt, sanngjarnt, gott. Höfundur er leiklistar menntaður og starfar sem tæknimaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun