Enski boltinn

City stað­festir brott­hvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Guardiola kveður með FA-bikartitli. Hann vann 20 titla á 10 árum í Manchester.
Guardiola kveður með FA-bikartitli. Hann vann 20 titla á 10 árum í Manchester. Shaun Brooks - CameraSport via Getty Images

Josep Guadiola mun stýra Manchester City í hinsta sinn á sunnudaginn kemur þegar liðið mætir Aston Villa í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta staðfesti félagið í tilkynningu í morgun.

Brotthvarf Guardiola lak út í vikunni en hann átti ár eftir af samningi sínum við Manchester City. Hann hefur ákveðið að hætta strax í sumar eftir tíu ára veru í Manchester-borg.

Á árunum tíu hefur Guardiola unnið 20 titla og bindur þar með enda á eina sigursælustu stjóratíð í sögu enska fótboltans. Guardiola slítur sig þó ekki alfarið frá City þar sem hann verður áfram í hlutastarfi hjá City Group, eignarhaldsfélagi Manchester City, sem alþjóðlegur sendiherra.

„Dömur mínar og herrar, takk fyrir að treysta mér,“ sagði Guardiola í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum City. „Takk fyrir að hvetja mig áfram. Takk fyrir að elska mig.“

„Tony Walsh sagði í ógleymanlegu ljóði sínu: „Þetta er staðurinn. Fyrirgefðu, Tony: þetta er minn staður.“

„Noel (Gallagher) ... ég hafði rétt fyrir mér.“

„Þetta hefur verið svo f-ing gaman. Elska ykkur öll,“ segir Guardiola í myndbandinu.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×