Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Fiskikóngurinn 23. maí 2026 09:38 Fiskikóngurinn Kristján Berg (t.v.) ásamt syni sínum Alexander Erni Kristjánssyni framkvæmdastjóra Fiskikóngsins. Þeir feðgar og annað starfsfólk Fiskikóngsins taka vel á móti gestum í dag laugardag þegar opnunarhátíð Fiskikóngsins fer fram. Í dag laugardag er stór dagur hjá Fiskikóngurinn á Sogavegi í Reykjavík þar sem efnt verður til opnunarhátíðar í tilefni af stækkun verslunarinnar. Gestum verður boðið upp á alls kyns tilboð, humarsúpusmakk og skemmtilega stemningu sem auðvitað er í anda mannsins á bak við fyrirtækið, Kristjáns Berg, best þekktur sem Fiskikóngurinn sjálfur. „
Þetta er í raun ný fiskbúð en þó sama gamla góða starfsfólkið,“ segir Kristján. Á opnunarhátíðinni í dag, sem stendur yfir milli kl. 10 og 15, verður nóg um að vera. Allur fiskur verður á 20 prósenta afslætti og það sama gildir um humar í öllum stærðum. Þá verður einnig boðið upp á humarsúpusmakk og sérstök tilboð á bæði humarsúpu og skelflettum humri fyrir þá sem vilja taka veisluna með sér heim. „Svo er grillvertíðin byrjuð og fólk er farið að grilla fisk miklu meira en áður. Ég held að allir þessir skemmtilegu matreiðsluþættir í sjónvarpinu hafi aukið áhuga landsmanna og mér finnst fólk miklu óhræddara en áður við að prófa sig áfram með nýjar fisktegundir á grillið.“ Í versluninni má nú finna fjölbreytt úrval af sjávarréttum fyrir grillið, meðal annars stórlúðu, túnfisk, risarækjur og grillspjót. Þá eru einnig komin svartfuglsegg og hin vinsæla signa grásleppa frá Drangsnesi. Þegar Kristján keypti húsið árið 2008 var það aðeins 99 fermetrar. Í dag er Fiskikóngurinn kominn í 600 fermetra og hefur því sexfaldað stærð sína. Fyrirtækið þjónustar í dag bæði einstaklinga, mötuneyti og leikskóla og starfsfólkið telur um tuttugu manns. „Við erum söluhæsta fiskbúð landsins,“ segir hann stoltur. „Á hverjum degi fara á milli 300 og 700 færslur í gegn hjá okkur og auðvitað eru mánudagarnir vinsælasti enda gömul hefð hjá Íslendingum að byrja vikuna á fiski.“ „Ágúst er stærsti mánuðurinn hjá okkur sem kemur sjálfsagt mörgum á óvart,“ segir Kristján. „Þá er fólk almennt orðið þreytt á grilluðum pylsum og kjöti eftir sumarið og vill borða ferskan fisk, hvort sem það er steiktur fiskur, fiskréttur í ofni eða grillaður fiskur.“ Fiskikóngurinn hvetur sem flesta til að kíkja í heimsókn í dag milli kl. 10 og 15 og fagna með starfsfólki Fiskikóngsins. „Við höfum rekið fiskbúðina í 36 ár og erum enn á sömu kennitölunni, geri aðrir betur. Við erum hvergi nærri hætt og stefnum á að þjónusta landann með úrvals fiski um ókomna tíð.“
Verslun Matur Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Tónlist Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Fleiri fréttir Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Myndaveisla: Bylgjulestin kvaddi sumarið á Flúðum Súrdeigsbrauðdrottningin breytti pítsadeigi í þriggja rétta grillveislu Ekki ofpeppast í áfenginu, plastpoka á táslurnar og forðast tjörnina Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Bylgjulestin brunar á Flúðir Í festival gír með Icewear Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Vissir þú að JYSK selur bleikan útilegustól? Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Myndir frá Selfossi þar sem Bylgjulestin var í beinni Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Hitavörn, blástursvörn eða UV-vörn? Hvað þarf hárið þitt í raun og veru? Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Glæsilegir vinningar í boði í Sumarleik Kjarnafæðis Sjá meira