Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Jakob Bjarnar skrifar 22. maí 2026 13:53 Hinn knái framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur brosir nú stafna á milli enda hefur félagafjöldinn margfaldast og er nú að nálgast ellefu hundruð manns. vísir/arnar Það sem er að gerast hjá Golfklúbbi Grindavíkur jaðrar við að mega heita kraftaverk. Fyrir tveimur árum, í kjölfar eldanna á Reykjanesi, sendu forráðamenn klúbbsins út hálfgert neyðarkall og voru komnir á fremsta hlunn með að hætta starfseminni. Bærinn var tómur en golfvöllurinn stóð keikur. „
Hér er uppgangurinn slíkur að það er lyginni líkast. Þegar ég byrjaði 2020 voru líklega 120 manns í klúbbnum. Við erum að detta í 1100 núna,“ segir Helgi Dan Steinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur. Lækkuðu gjaldið og straumurinn liggur til Grindavíkur Golfsprengjan margumrædda hefur heldur betur náð til Grindavíkur. „Hér er meira og minna kjaftfullt alla daga, alltaf. Við erum búnir að fjárfesta, vélarkost á við það sem best gerist, fyrir æfingasvæðið. Já, það er þvílíkur uppgangur.“ Helgi segir að þetta séu mikil viðbrigði en á sínum tíma, þegar bærinn var tómur vegna jarðeldanna, var ekki gert ráð fyrir því að nein umferð yrði á vellinum. Menn varpa nú öndinni léttar. „Það er rétt. Við erum í sérstakri aðstöðu. Við erum að reka golfklúbb en það býr enginn í sveitarfélaginu. Ekki í raun og veru. Við gripum til þess að lækka gjaldið um fimmtíu prósent, úr 90 þúsund krónum í 44.900 krónur. Og það virðist hafa dugað,“ segir Helgi. Brosir stafnanna á milli Hann segir reksturinn nú í góðu lagi. Þau séu vissulega ekki að fá fólk á hverjum degi í golf, fólk þurfi að gera sér ferð hingað. „Sá sem lék flesta hringi árið 2023 fór hringi, 120 hringi, en í fyrra lék sá sem fór oftast 40 hringi, sem er reyndar frábær ástundun en þetta segir sína sögu. Við getum tekið á móti góðum fjölda fólks án þess að það sé að sprengja klúbbinn. Það hefur verið gríðarlega góður gangur í þessu hjá okkur, það verður að segjast.“ Helgi Dan er kátur í glæsilegu klúbbhúsi Grindavíkur. Þar er mikill uppgangur.vísir/jakob Helgi segir það líka hjálpa að fólk komist ekki í klúbb í Reykjavík, sem reyndar eru áhöld um hvernig það vill verkast. „En við brosum stafnanna á milli. Þeir sem eru að koma í klúbbinn eru glaðir með það sem við erum að gera. Þetta eru ekki allt saman sorgarsögur úr golfinu á Íslandi.“
Grindavík Golf Golfvellir Eldgos á Reykjanesskaga Tengdar fréttir „Loksins koma jákvæðar fréttir frá Grindavík“ Fengist hefur leyfi til þess að opna Húsatóftavöll við Grindavík á nýjan leik eftir mikla óvissutíma sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Kylfingar eru nú byrjaðir að flykkjast á völlinn á ný. „Loksins einhverjar jákvæðar fréttir frá Grindavík,“ segir framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur. 12. júní 2024 08:00 Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Forkólfum golfklúbba landsins brá mörgum í brún þegar þeir litu bréf sem þeim barst frá lögmanni Stjórnsýslusviðs ÍSÍ, með milligöngu GSÍ, en þar kom fram að þeim sé óheimilt að synja einstaklingi um aðild á þeim forsendum að rými sé ekki til staðar í klúbbnum. 15. maí 2026 14:43 Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Einar Lyng Hjaltason er rekstraraðili golfvallarins í Hveragerði og honum féllust hreinlega hendur í gær og var kominn á fremsta hlunn með að loka vellinum. Svo slæm var umgengnin. 21. maí 2026 12:59 Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Sjá meira
„Loksins koma jákvæðar fréttir frá Grindavík“ Fengist hefur leyfi til þess að opna Húsatóftavöll við Grindavík á nýjan leik eftir mikla óvissutíma sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Kylfingar eru nú byrjaðir að flykkjast á völlinn á ný. „Loksins einhverjar jákvæðar fréttir frá Grindavík,“ segir framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur. 12. júní 2024 08:00
Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Forkólfum golfklúbba landsins brá mörgum í brún þegar þeir litu bréf sem þeim barst frá lögmanni Stjórnsýslusviðs ÍSÍ, með milligöngu GSÍ, en þar kom fram að þeim sé óheimilt að synja einstaklingi um aðild á þeim forsendum að rými sé ekki til staðar í klúbbnum. 15. maí 2026 14:43
Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Einar Lyng Hjaltason er rekstraraðili golfvallarins í Hveragerði og honum féllust hreinlega hendur í gær og var kominn á fremsta hlunn með að loka vellinum. Svo slæm var umgengnin. 21. maí 2026 12:59