Formúla 1

Mercedes öku­mennirnir halda á­fram að berjast

Andri Broddason skrifar
Hitinn er að magnast í herbúðum Mercedes
Hitinn er að magnast í herbúðum Mercedes Mark Sutton - Formula 1/Formula 1 via Getty Images

George Russell sigraði sprettkeppnina sem var haldin í Kanada eftir mikla baráttu við Kimi Antonelli. Báðir eru ökumenn Mercedes og endaði Antonelli í þriðja sæti eftir að flýja árekstur milli hans og Russell.

Hörð barátta er milli Mercedes ökumannana, George Russell og Kimi Antonelli í heimsmeistara kepnni Formúlu 1 og sýndi það sig í sprettkeppninni sem var að klárast í Kanada

George Russell byrjaði fremstur á rástöð með Kimi Antonelli í örðu sæti eftir spretttímatökurnar sem fóru fram í gærkvöldi. 

Mercedes ökumennirnir börðust harkalega í sprettinum sem endaði með því að Antonelli þurfti að keyra á grasinu til að forðast árekstur. Þá greip Lando Norris tækifærið og kom McLaren bifreið sinni í annað sætið og náði að halda því út keppnina. Antonelli endaði því í þriðja sæti.

 Eftir keppni var Antonelli ekki sáttur með hörku liðsfélaga síns og gefur í skyn að hann muni ekki gefa eftir næst.

Tímatökur fyrir kappaksturinn á morgun fara fram í kvöld og eru sýndar beint á Sýn Sport Viaplay klukkan 19:55.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×