Handbolti

Verður Aron þjálfari FH?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Aron Pálmarsson er tekinn við nýju hlutverki hjá FH.
Aron Pálmarsson er tekinn við nýju hlutverki hjá FH. vísir

Handkastið greinir frá því að Aron Pálmarsson muni taka við þjálfun karlaliðs FH í handbolta. Sigursteinn Arndal verði aðstoðarþjálfari.

Svo segir í frétt Handkastsins frá því í morgun. Aron kom inn í þjálfarateymi FH í febrúar síðastliðnum og tók að sér að stýra sóknarleik liðsins. Áður var hann sérstakur ráðgjafi handknattleiksdeildar félagsins. Það er staða sem hann tók við sumarið 2025.

Síðasta haust sagðist Aron ekki hafa áhuga á þjálfun en sú skoðun virðist hafa breyst síðan.

Hann var áberandi í úrslitakeppninni þar sem hann stýrði flestum leikhléum liðsins og stillti sóknarleikinn af. FH tapaði fyrir Val í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn.

Sigursteinn Arndal hefur verið þjálfari FH frá árinu 2019 og stýrði liðinu til Íslandsmeistaratitils árið 2024. Þá var Aron leikmaður liðsins.

Samkvæmt Handkastinu muni Sigursteinn ekki hætta í Krikanum en taka að sér að vera aðstoðarþjálfari Arons.

Aron lauk ferli sínum sem leikmaður á síðasta ári þar sem hann spilaði eina leiktíð með Veszprem í Ungverjalandi eftir að hafa komið heim í FH og unnið Íslandsmeistaratitilinn vorið 2024.

Hann er einn allra besti handboltamaður sögunnar og raðaði inn titlum með Kiel, Barcelona, Veszprem og Álaborg í Danmörku.

Hann vann þýsku úrvalsdeildina fimm sinnum, þá spænsku fjórum sinnum og þá ungversku tvisvar. Þá vann hann Meistaradeild Evrópu þrisvar, einu sinni með Barcelona og tvisvar með Kiel.

Aron skoraði 576 mörk í 148 landsleikjum fyrir Ísland og vann með liðinu brons á EM 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×