Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar 27. maí 2026 07:31 Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Svona hljómar spurningin sem lögð verður fyrir landsmenn í þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst. Meirihluti utanríkismálanefndar hefur skilað umsögn um þingsályktun um aðildarviðræður. Þótt þar sé vissulega fjallað um mikilvægi sjávarútvegs og að tryggja þurfi hagsmuni hans eru engar útlistanir á því hvernig það verður gert. Sjávarútvegur og þar með þjóðin verða fyrir miklum áhrifum komi til inngöngu í ESB. Það er ekki hægt að leggja af stað í viðræður án þess að hagsmunir sjávarútvegs séu kyrfilega tryggðir, sem og hagsmunir þjóðarinnar af því að ráða sínum auðlindum sjálf. Hér verður ekki tekin afstaða um það hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, eingöngu er verið að benda á hlutlægar staðreyndir sem útilokað er að líta fram hjá. Rétt er að halda því til haga að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi eru ekki mótfallin fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Samtökin leggjast hins vegar gegn því að farið verði í aðildarviðræður án þess að ríkir hagsmunir af auðlindum lands og sjávar verði tryggðir. Sjávarútvegur er burðarstólpi byggðar og góðra lífskjara Íslenskt samfélag og efnahagslíf byggjast að verulegu leyti á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Fiskurinn í sjónum í kringum Ísland er sú auðlind sem við höfum nýtt hvað lengst. Sjávarútvegur á Íslandi er sá hagkvæmasti í heimi og nýting fiskistofna er sjálfbær. Þetta er öfundsverð staða, sama hvernig á hana er litið. Sjávarauðlindin hefur alið af sér aðra auðlind sem eru margháttaðar nýjungar í tækni og vísindum. Fyrir utan hið augljósa að vera undirstaða atvinnu og byggðafestu víða um land. Á það hefur verið bent að eigendur sjávarútvegsfyrirtækja kunni að hagnast á því ef Ísland gengi í ESB. Vafalítið myndu verðmæti fyrirtækjanna aukast tímabundið ef yfirráð aflaheimilda myndu hverfa úr íslenskum höndum, en verðmætasköpun á Íslandi yrði minni. Óþarfi er raunar að hafa mörg orð um það hversu alvarlegar afleiðingar slíkt myndi hafa á hag sjómanna, starfsmanna í landvinnslu og lífsafkomu fjölmargra annarra. Það er mat SFS að líta beri fram hjá mögulegum skammtímahagsmunum fárra en leggja beri höfuðáherslu á að vernda lífsafkomu þeirra er starfa í sjávarútvegi og tryggja að verðmætasköpun í sjávarútvegi komi íslensku samfélagi áfram til góða. Viljinn í orði en ekki á borði Margoft hefur komið fram í opinberri umræðu að ráðherrar ríkisstjórnarinnar muni ekki skrifa undir samning nema í honum séu ákvæði sem tryggi full og varanleg yfirráð Íslands yfir auðlindum. Utanríkisráðherra hefur lýst þeim ásetningi að hún muni aldrei skrifa undir samning sem fæli „… í sér afsal á forræði Íslendinga yfir auðlindum, eins og t.d. fiskveiðiauðlindinni,“ og að hún myndi aldrei skrifa undir samning sem fæli „… ekki í sér fyrirsjáanleg yfirráð Íslands um skemmri og lengri tíma yfir okkar auðlindum.“ Hún hefur jafnframt staðfest að þetta feli í sér kröfu um full og varanleg yfirráð Íslands yfir auðlindum. Forsætisráðherra hefur lýst þeirri skoðun að setja þurfi skýr rauð flögg þegar kemur að orku- og sjávarauðlindum og að „prinsippin“, rauðu línurnar, séu algerlega skýr í huga ríkisstjórnarinnar. Þriðji leiðtogi ríkisstjórnarinnar, mennta- og barnamálaráðherra, segir að gera verði kröfu um „… skilyrðislaus yfirráð yfir okkar auðlindum frá A til Ö. Að öðrum kosti [yrði] aldrei um neina inngöngu í Evrópusambandið að ræða.“ Atvinnuvegaráðherra telur að það sé lykilatriði og „… ófrávíkjanleg krafa að við höldum yfirráðum yfir auðlindum okkar.“ Áður en gengið er til samninga, sama á hvaða vettvangi það er, er mikilvægt að ákveða hvað hægt sé að gefa eftir og hvað ekki. Það þarf með öðrum orðum að setja sér skýr samningsmarkmið. Það er grundvallaraðferðafræði í samningum. Með þjóðaratkvæðagreiðslu hyggjast stjórnvöld sækja sér umboð til aðildarviðræðna, en undarlegt verður að teljast að lítið sem ekkert er gefið upp um það fyrir fram hvað í umboðinu felst. Hér skortir mikið upp á fullnægjandi gagnsæi. SFS skoraði á utanríkismálanefnd að kortleggja nákvæmlega grundvallarhagsmuni Íslands og upplýsa með skýrum og ótvíræðum hætti hver samningsmarkmiðin verði og hvort og þá hvaða ófrávíkjanlegu kröfur verði gerðar af hálfu Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Við því var ekki orðið. Í áliti meirihluta nefndarinnar er finna almenna umfjöllun um mikilvægi sjávarútvegs. Afar takmörkuð tilraun er gerð til að móta og veita upplýsingar um samningsmarkmið, að öðru leyti en því að nefna að lykilkröfur Íslendinga snúi að forræði yfir sjávarauðlindinni og rétti Íslendinga til að stýra sókn í veiðistofna er byggist á sjálfbærri nýtingu, ráðgjöf sérfræðinga og veiðireynslu. Ekki er minnst á að gerðar verði ófrávíkjanlegar kröfur af hálfu Íslands. Ekki er minnst á svokallaðar rauðar línur sem ekki má fara yfir. Þegar sótt var um aðild að ESB árið 2009 voru til muna skýrari línur lagðar í áliti utanríkismálanefndar, einkum um yfirráð yfir deilistofnum og fyrirsvar í alþjóðlegum samningum. Verður ekki annað ráðið af nefndarálitinu en ætlunin nú sé að veita ríkisstjórninni víðtækt svigrúm til að gefa eftir yfirráð yfir auðlindum, að minnsta kosti hvað varðar sjávarútveg. Það bendir ekki til þess að Ísland sé í sérstaklega góðri samningsstöðu, þvert á það sem fram hefur verið haldið. Þá vantar í álitið að kveðið sé á um það með skýrum hætti að erlendar fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum verði áfram háðar sömu takmörkunum og verið hefur. Mikilvægt að lágmarka óvissu Að mati samtakanna er það grundvallarskilyrði, áður en farið verður í viðræður, að Alþingi ákveði samningsmarkmið og hvaða ófrávíkjanlegu kröfur á að gera í viðræðunum. Án þessara upplýsinga er deginum ljósara að fyrirtæki í sjávarútvegi muni halda að sér höndum í fjárfestingum, enda verður þá óljóst hvað framtíðin ber í skauti sér í rekstrarumhverfi greinarinnar. Minni fjárfestingar þýða einfaldlega minni verðmætasköpun og þar með minni hagvöxt. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hvetja Alþingi eindregið til þess að tryggja, áður en óskað er umboðs þjóðarinnar til að hefja aðildarviðræður, að Ísland haldi fullum og varanlegum yfirráðum yfir öllum auðlindum Íslands og það sé ófrávikjanleg krafa. Það væri í samræmi við það sem ráðamenn hafa áður sagt og yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar hefur lýst í könnunum. Óvissa tengd mögulegum viðræðum verður engum til gagns og því vekur furðu að álit meirihluta utanríkismálanefndar reyni ekki að draga úr þessari óvissu. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason Skoðun Skoðun Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Sjá meira
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun