„Afar brýnt“ að klára frumvarp um rýmri fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða
Formaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir að nú þegar blikur séu á lofti í íslensku hagkerfi þá skipti máli að búa yfir öflugu lífeyriskerfi til að koma hjólum atvinnulífsins af stað, meðal annars með aðkomu að innviðaverkefnum. Þess vegna sé „afar brýnt“ að lögfesta frumvarp um um rýmri fjárfestingarheimildir lífeyrissjóðanna fyrir sumarið.
Tengdar fréttir
„Af hverju vilja stjórnvöld ekki fá innvið afhentan á silfurfati eftir tuttugu ár?“
Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs furðar sig á því „af hverju í ósköpunum“ stjórnvöld hafi ekki farið meira þá leið við uppbyggingu mannvirkja hér á landi, eins og var gert í tilfelli Hvalfjarðarganga, að efna til samstarfs við fjárfesta og geta þannig fengið afhentan innvið á silfurfati til sín eftir kannski tuttugu ár þegar einkaaðilar séu búnir að reka hann í samræmi við reglur. Hann situr núna í starfshópi um mögulega stórfellda íbúðauppbyggingu í Úlfársdal en segir að það eigi eftir að koma í ljóst hvort lífeyrissjóðum verði treyst til að hafa aðkomu að því verkefni.
Regluverk hamlar fjárfestingu í innviðum sem dregur niður eignaverð
Innviðafjárfesting á Íslandi hefur fallið milli skips og bryggju í íslensku regluverki eftir fjármálahrun. Stofnanafjárfestar eru lattir til fjárfestinga í hlutafé innviðafélaga, eins og fasteignafélögunum, vegna regluverks jafnvel þótt þær séu eðlilegur hluti af eignasafni flestra langtímafjárfesta. „Lágt verð innviðafyrirtækja, sem er langt undir markaðsvirði og lítil fjárfesting í innviðum síðustu ár, ætti ekki að koma neinum á óvart,“ segir í hlutabréfagreiningu.
Fylgjandi „meira frelsi“ í fjárfestingum lífeyrissjóða en vill efla kröfur og eftirlit
Þrátt fyrir að segjast vera fylgjandi þeim „umfangsmiklu tilslökunum“ sem til stendur að gera á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóðanna þá er Seðlabankinn nokkuð gagnrýninn á að ekki sé gengið lengra í því sem hann telur „brýnar“ mótvægisaðgerðir, meðal annars þegar kemur að því að efla kröfur um stjórnarhætti og innra eftirlit sjóðanna.