Íslenskir fjárfestar verða fyrir tugmilljarða höggi við gengishrun Oculis
Eitt af þremur þróunarlyfjum Oculis, sem innlendir og erlendir fjárfestar höfðu bundið miklar vonir við, mistókst að ná aðalmarkmiðum sínum þegar niðurstöður úr tveimur fasa 3 rannsóknum voru tilkynntar síðla dags í gær og því verður ekki sótt um markaðsleyfi hjá FDA. Markaðsvirði félagsins, sem var áður um 250 milljarðar, féll um helming á Bandaríkjamarkaði í gær en íslenskir fjárfestar – einkum lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og spákaupamenn – verða fyrir umtalsverðu höggi sem á eftir að smitast yfir á hlutabréfamarkaðinn í heild sinni.
Tengdar fréttir
Erlendu sjóðastýringarrisarnir sem eru að byggja hratt upp stöðu í Oculis
Erlendir fjárfestingarsjóðir, meðal annars sérhæfðir sjóðastýringarrisar með áherslu á líftækni- og heilbrigðisgeirann, eru að stækka hratt stöðu sína í Oculis og hafa sumir þeirra keypt í félaginu fyrir marga milljarða á allra síðustu vikum og mánuðum. Vaxandi eftirspurn meðal erlendra fjárfesta hefur skilað sér í meiri veltu og hækkun á hlutabréfaverði en Oculis er núna orðið fjórða verðmætasta félagið á íslenskum hlutabréfamarkaði.
Bandarískir sjóðir fyrirferðamestir þegar Oculis kláraði 110 milljóna dala útboð
Líftæknilyfjafélagið Oculis hefur klárað hlutafjárútboð upp á samtals um 110 milljónir Bandaríkjadala en hið nýja fjármagn kemur nánast alfarið frá erlendum fjárfestingarsjóðum. Fjármögnuninni er ætlað að hraða klínískri þróunarvinnu á einu af þróunarlyfi félagsins við bráðri sjóntaugabólgu en eftir að hafa fengið jákvæða endurgjöf frá FDA fyrr í þessum mánuði hækkuðu bandarískir greinendur verulega verðmat sitt á Oculis.
Telja Oculis verulega undirverðlagt í fyrsta verðmati sínu á félaginu
Greinendur bandarísks fjárfestingabanka hafa bæst í hóp fjölmargra erlendra fjármálafyrirtækja sem fjalla reglulega um líftæknifyrirtækið Oculis og verðmeta það núna hæst allra greinenda.
Hækka enn verðmöt sín og segja yfirstandandi ár vera „lykilár“ fyrir Oculis
Greinendur erlendra fjármálastofnana halda uppteknum hætti og hafa hækkað verðmöt sín á Oculis eftir uppgjör fjórða fjórðungs, sumir um meira en fimmtíu prósent. Yfirstandandandi ár er sagt vera „lykilár“ þegar kemur að niðurstöðum rannsókna á tveimur lyfjum og verði þær jákvæðar gæti það skilað sér í „verulegri“ hækkun á hlutabréfaverðinu.
Gildi einn stærsti hluthafinn í Oculis með um fimm milljarða stöðu
Lífeyrissjóðurinn Gildi var í byrjun ársins í hópi allra stærstu hluthafa Oculis, með eignarhlut sem er núna verðmetinn á um fimm milljarða, en eftir að framtakssjóðurinn Brunnur afhenti nýlega alla hlutafjáreign sína til sjóðsfélaga er enginn íslenskur fjárfestir með yfir fimm prósenta hlut í augnlyfjaþróunarfyrirtækinu. Hlutabréfaverð Oculis hefur lækkað um liðlega fjórðung á undanförnum vikum en erlendir greinendur telja félagið verulega undirverðlagt og hækkuðu sumir verðmat sitt eftir ársuppgjör.
Stækkuðu útboð Oculis um helming vegna eftirspurnar erlendra sjóða
Áhugi sérhæfðra erlendra fjárfestingarsjóða á að fá úthlutað meira magni af bréfum í sinn hlut í hlutafjáraukningu Oculis þýddi að útboðið var stækkað talsvert frá því sem upphaflega var ráðgert þegar líftæknifélagið kláraði jafnvirði um fjórtán milljarða fjármögnun. Erlendir fjárfestar lögðu til rétt ríflega helminginn af þeim fjármunum sem Oculis sótti sér en andvirði þess verður meðal annars nýtt til að hraða klínískri þróun á mögulega byltingarkenndu lyfi sem fékk afar jákvæðar niðurstöður úr rannsóknum í byrjun ársins.
Skráning Oculis á Aðalmarkað má rekja til áhuga frá fjárfestum
Skráning augnlyfjaþróunarfélagsins Oculis í Kauphöll Íslands er viðbragð við áhuga frá innlendum fjárfestum og byggð á óskum hluthafa, segir framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu. Mögulega mun fyrirtækið byrja að afla tekna árið 2026. Hann segir að það sé unnið að því að auka veltu með hlutabréfin á Nasdaq. Hún hafi verið að aukast og við það verði verðmyndun vonandi betri en markaðurinn ráði verðinu þegar öllu sé á botninn hvolft.