Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 16:03 William Saliba og Declan Rice fagna saman Englandsmeistaratitli Arsenal en nú gæti bara annað þeirra verið með á heimsmeistaramótinu í sumar. Getty/Stuart MacFarlane William Saliba, miðvörður Arsenal og franska landsliðsins, er mjög tæpur fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta en hann meiddist á baki fyrir nokkrum vikum.
Hinn 25 ára gamli Saliba fór í myndatöku í dag til að kanna alvarleika meiðslanna en óttast er að hann þurfi langan tíma í hvíld og meðferð og muni því missa af heimsmeistaramótinu með franska landsliðinu. Það yrðu gríðarleg vonbrigði fyrir hann að missa af keppninni þar sem landslið hans er meðal þeirra sigurstranglegustu. Það yrði einnig mikið áfall fyrir Didier Deschamps og Les Bleus að missa einn besta varnarmann heims. 🇫🇷🚨 Coup de tonnerre absolu pour l'équipe de France ! Blessé lors de la finale de la Ligue des Champions, William Saliba est grandement incertain pour la Coupe du Monde ! Le timing catastrophique pour les Bleus !📰 Retrouvez l'article complet juste en dessous 👇 pic.twitter.com/uNDJBvMOf9— Onze Mondial (@OnzeMondial) June 1, 2026 Aðrir varnarmenn sem Frakkar hafa kallað til eru Lucas Digne, Malo Gusto, Lucas Hernández, Theo Hernández, Ibrahima Konaté, Jules Koundé, Maxence Lacroix og Dayot Upamecano. Það vakti athygli að miðjumaður Real Madrid, Eduardo Camavinga, var ekki valinn. Frakkar eru í I-riðli á heimsmeistaramótinu og munu mæta Senegal, Írak og Noregi. Saliba spilaði 50 af 63 leikjum Arsenal í öllum keppnum á þessu tímabili og var lykilmaður í liðinu sem vann ensku úrvalsdeildina og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Arsenal tapaði í vítaspyrnukeppni gegn Paris Saint-Germain eftir 1-1 jafntefli í úrslitaleiknum í Búdapest. En nú horfa Frakkar fram á að þurfa að stefna að heimsmeistaratitlinum án Saliba.
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Arsenal FC Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Íslenski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Handbolti „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira