Sport

Heims- og Ólympíumeistari í mara­þoni féll á lyfja­prófi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Keníska hlaupakonan Peres Jepchirchir fagnar heimsmeistaratitli sínum í maraþoni í fyrra.
Keníska hlaupakonan Peres Jepchirchir fagnar heimsmeistaratitli sínum í maraþoni í fyrra. Getty/Andrzej Iwanczuk

Peres Jepchirchir er komin í bann eftir að sýni frá henni gaf jákvæða niðurstöðu um mögulega blóðlyfjamisnotkun.

Þetta tilkynna heiðarleikasamtök frjálsíþróttanna (AIU). Keníska hlaupakonan, sem er 33 ára gömul, er í tímabundnu banni á meðan málið er rannsakað.

Jákvæða EPO-prófið hjá Jepchirchir var tekið utan keppni í Kenía áður en hún fagnaði sigri sínum í Sydney-maraþoninu í lok ágúst.

Hin 33 ára gamla hlaupakona sigraði í fyrra í maraþonhlaupinu á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum í Tókýó. Hún varð ólympíumeistari á sama stað árið 2021 og hefur áður átt heimsmetið í hálfmaraþoni.

Meðal annarra sigra hennar eru sigrar í maraþonhlaupum í New York (2021), Boston (2022) og London (2024).

Á fimmtudag var greint frá því að hin sigursæla maraþonhlaupakona Ruti Aga frá Eþíópíu hefði verið dæmd í sex ára bann fyrir tilraun til að hagræða lyfjaprófi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×