Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 4. júní 2026 19:10 Thelma Kristín Kvaran er eigandi Intellecta. sýn Dæmi eru um að hátt í tvö hundruð manns sæki um auglýst starf og er samkeppni á vinnumarkaði meiri nú en fyrir ári síðan. Þetta segir eigandi ráðningarstofu. Efnahagsástandið vegi þar þyngst.
Hundruðum sagt upp í maí, uppsagnir hjá Kviku banka, hópuppsögn hjá Rapyd, uppsagnir hjá Bláa lóninu, þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya, meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí. Svona hljóða nýlegar fréttir um íslenskan vinnumarkað. Samkvæmt Hagstofunni mældist atvinnuleysi 5,8 prósent í apríl og var fjöldi atvinnulausra 13.500. Thelma Kristín Kvaran, eigandi ráðgjafa- og ráðningafyrirtækisins Intellecta segist finna fyrir auknu atvinnuleysi. „Við erum með mun fleiri á línunni þessa dagana heldur en bara fyrir ári síðan.“ Misjafnt er hver margir bítast um hverja stöðu. Umsækjendur um sérfræðinga- og stjórnendastöður eru yfirleitt færri en hundrað en þegar auglýst er eftir starfsfólki með minni sérfræðiþekkingu er sagan önnur. „Þjónustustörfin... mjög margt sem tengist þjónustu og jafnvel sölu- og markaðsmálum, þá erum við að fá jafnvel upp í 150 til 200 umsóknir.“ Samkeppnin mikil Thelma segir misjafnt hljóð í fólki. Samkeppnin sé mikil og margir verið lengi í atvinnuleit á meðan aðrir renna hratt í gegnum ferlið. Hún segir ýmislegt skýra stöðuna á vinnumarkaði en efnahagsástandið vegi þar þyngst. „Það er búið að vera mikið um að fyrirtæki séu að endurskipuleggja og fyrirtæki eru mörg hver að eiga erfitt. Svo er búið að boða alls konar niðurskurð þannig fyrirtæki eru bara með áhyggjur.“ Thelma segir nóg um að vera hjá Intellecta.aðsend Stóraukning Hún segir þó góðan gang í ráðningum. Mikil fjölgun sé í hópi þeirra sem kjósi að setja sig á lista hjá ráðningarstofum enda sé fjöldi starfa sem komi inn á borð þeirra ekki auglýstur. Þá sé töluverð fjölgun í hópi þeirra sem leita í ráðgjöf við atvinnuleit. „Það er eiginlega stóraukning í því hjá okkur. Fólk vill fara að vinna umsóknargögnin sín betur og er að fá ráðgjöf til að koma ferilskrá og kynningarbréfi í gott lag.“
Vinnumarkaður Efnahagsmál Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira