Atvinnulíf

Þúsund manna há­tíðir ekkert mál en ein lítil kóngu­ló skelfi­leg!

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Davíð Lúther Sigurðsson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Kringlunni og á Selfossi og sér líka um miðbæinn á Selfossi. Hann vaknar klukkan 07.03 og byrjar daginn með svo hressilegri tónlist að flestir myndu hringja í lögregluna og kvarta undan hávaða.
Davíð Lúther Sigurðsson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Kringlunni og á Selfossi og sér líka um miðbæinn á Selfossi. Hann vaknar klukkan 07.03 og byrjar daginn með svo hressilegri tónlist að flestir myndu hringja í lögregluna og kvarta undan hávaða. Vísir/Vilhelm

Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„07:03. Ég stillti klukkuna fyrir mörgum árum svona og þetta hefur fest sig í sessi og ætla ég nú ekkert að laga það úr þessu.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég kveiki á tónlist sem vekur bæði mig og dóttur mína. Yfirleitt eitthvað svo hresst að flestir myndu líklega hringja á lögregluna og biðja um lækka í þessu partýi.“

Hvað á það til að hræða úr þér líftóruna?

„Ég get skipulagt hátíð fyrir þúsundir manna án þess að blikka augunum, en ein lítil kónguló getur sett allt kerfið úr sambandi.“

Ef sími Davíðs myndi týnast, væri voðinn vís. Því í dagatali símans er allt lífið að sögn Davíðs, sem treystir meira á skipulagið sem þar er skráð en sitt eigið minni. Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefnum ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Eftir að ég kvaddi auglýsingabransann þá fór ég í veitingabransann og á og rek Oche Reykjavík, tónleikastaðinn Sviðið, skemmtistaðinn Miðbar, Kokteilabarinn Risið, Takkó, Röstí börgers og Romano Pasta. 

Ég sé líka um miðbæ Selfoss og er sem sagt maðurinn sem fær fólk til að borða, versla, drekka og skemmta sér í litlu Köben og Kringlunni.

Núna er ég að skipuleggja sumarið í miðbæ Selfoss, bóka listamenn og finna leiðir til að gera lífið aðeins skemmtilegra fyrir fólk. Risaskjárinn er að fara að mæta til dæmis á torgið í miðbæ Selfoss þar sem HM verður sýnt alla daga. Svo erum við að setja af stað sumarseðil í gang á Oche Reykjavík þar sem verða öll kvöld með Late Happy Hour til lokunar.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Ef síminn minn myndi deyja væri ég líklega týndur í nokkra daga. 

Allt líf mitt er í dagatalinu þar inni og fundirnir eru oft bókaðir margar vikur fram í tímann. 

Ég treysti meira á dagatalið en eigið minni og Apple ID-ið mitt má aldrei klikka.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Það fer eftir því hvort hausinn ákveður að hætta að vinna. Oft ligg ég uppi í rúmi að fara yfir daginn, næsta dag og svo einhverjar þrjár til fjórar nýjar hugmyndir sem mér finnst byltingarkenndar klukkan 23:47. Svo þarf ég bara að sannfæra sjálfan mig um að þær séu enn góðar morguninn eftir.“


Tengdar fréttir

Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn.

Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna

Halldóra Skúladóttir, stofnandi Kvennaráðs og ráðgjafi vinnustaða varðandi breytingaskeiðið, segist fá svo mikið dópamínbúst af því að strika yfir kláruð verkefni á listanum að stundum skrifar hún niður hluti bara til að geta strikað yfir þau.

Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans

Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, á fjögur börn en er afar morgunsvæfur. Það sem í raun bjargar morgnunum heima fyrir er árisul og góð eiginkona en almennt er Aríel síðan svo rútínufastur að meira að segja sömu fötin eru keypt aftur og aftur í verslunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×