Icelandair tekur litáíska vél á leigu Sigurgeir Þorkelsson skrifar 6. júní 2026 12:49 Seinkun á afhendingu þotu hefur leitt til þess að taka hefur þurft erlenda vél, ásamt áhöfn, á leigu. Vísir/Vilhelm Icelandair hefur erlenda flugvél í leigu frá litháíska leiguflugfélaginu Heston Airlines. Er um svokallaða blautleigu að ræða og fylgir erlend áhöfn með vélinni.
Vísir hafði áður greint frá því að seinkun hefði orðið á afhendingu nýrrar Airbus-þotu fram í byrjun júní en búist hafði verið við vélinni fyrir rúmum tveimur vikum. Leiga erlendu vélarinnar stendur yfir frá þriðja til áttunda júní. Núverandi kjarasamningar gera Icelandair heimilt að stunda slíka blautleigu í undantekningartilfellum, líkt og nú þegar þotan barst ekki til afhendingar. Samkvæmt heimildum fréttastofu fer Icelandair í yfirstandandi kjarasamningsviðræðum við flugmenn fram á að heimildir félagsins til að taka erlendar vélar, með áhöfnum, til leigu verði auknar. Flugvirkjar mótmæla flutningi starfa úr landi Flugvirkjafélag Íslands ritaði í vikunni opið bréf til forsvarsmanna Icelandair um að láta af áformum sínum um að flytja sérfræði- og tæknistörf úr landi. Vísir greindi frá því í lok apríl að dótturfélag Icelandair í gegnum Loftleiðir, Icelandair Third Party Technical Services, hefði verið stofnað í Vilníus í Litáen. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir engin tengsl milli stofnunar dótturfélagsins og þess að litáenskt leiguflugfélag hafi orðið fyrir valinu. Það gerist reglulega þegar sumardagskrá flugfélagsins sé keyrð í gang að útvega þurfi vél um styttri tíma til að brúa bil og þá ráði einfaldlega hvaða flugfélög hafi upp á leiguna að bjóða. Heston Airlines er litáískt leiguflugfélag.Heston Airlines Þegar Vísir greindi fyrst frá stofnun litáíska dótturfélagsins gert ráð fyrir að það myndi ráða til sín fimmtán starfsmenn og hefja starfsemi í maí. Félagið skyldi annast skipulag og eftirlit með viðhaldi flugvéla sem væru í langtímaleigu hjá erlendum viðskiptavinum Loftleiða, leiguflugsarms Icelandair. Kom fram að engum starfsmanni hérlendis hefði verið sagt upp störfum vegna breytinganna. Í skeyti til fréttastofu staðfestir Guðni að það standist enn. Hægfara hreyfingar í kjaraviðræðum flugmanna Meira hefur borið á kjaradeilu Icelandair við flugmenn síðustu vikur sem, líkt og kjaradeila flugvirkja, er einnig á borði ríkissáttasemjara, Ástráðs Haraldssonar. Í samtali við fréttastofu í morgun staðfesti hann að ekki hefði verið boðað til nýs fundar. „Ég er í stöðugu sambandi við aðila. Við fundum um leið og menn eru tilbúnir.“ Síðast var fundað í deilunni í fyrrakvöld. Þá lagði samninganefnd Icelandair fram heildstætt skjal með umfangsmiklum breytingum á gildandi kjarasamningi við flugmenn. Ástráður hefur sagt skjalið vera fyrsta skrefið í áttina að því að móta skýran ramma utan um hvað verður samið um í þessari kjaradeilu félagsins við flugmenn. Einhver tákn eru á lofti um að deiluaðilar færist nær hvorum öðrum en Félag íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, sendi í gær hvatningu til félagsfólks að hlaupa undir bagga með Icelandair á þessum erfiðu tímum fyrir félagið. „Fram undan er hábjargræðistími Icelandair félagsins okkar. Þið sem getið hlaupið undir bagga og stutt við rekstur félagsins eruð áfram hvött til þess,“ sagði FÍA í fréttabréfi sínu. Mönnunarvandi í flugstjórnarklefa hefur síðustu vikur orðið valdur að því að fella hefur þurft niður tuttugu brottfarir frá Keflavíkurflugvelli. Líkt og áður sagði hefur þó ekki verið boðað til næsta fundar í deilunni. „Ég á ekki von á því að það verði fundur í deilunni fyrr en eftir helgina,“ segir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari. Fréttin hefur verið uppfærð með staðfestingu Icelandair um að stofnun litáíska dótturfélagsins hafi ekki leitt til neinna uppsagna hérlendis.
Icelandair Flug Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Sjá meira