Formúla 1

Missti af verð­launa­palli og endaði í sjöunda sæti

Andri Broddason skrifar
Pierre Gasly er skiljanlega svekktur að hafa ekki náð að standa á verðlaunapalli í Mónakókappakstrinum í gær.
Pierre Gasly er skiljanlega svekktur að hafa ekki náð að standa á verðlaunapalli í Mónakókappakstrinum í gær. Jayce Illman/Getty Images

Alpine eru svekktir yfir því að hafa ekki náð að fagna verðlaunapalli í Mónakókappakstrinum sem var í gær. Refsingar fyrir að keyra of hratt inn á þjónustusvæðinu gerðu það að verkum að þeir náðu ekki að fagna fyrsta verðlaunapalli liðsins síðan í Brasilíu 2024.

Pierre Gasly ökumaður Alpine fagnaði vel og innilega yfir því að hafa náð að enda í þriðja sæti í Mónakókappakstrinum í gær. Þar sem liðið var ekki búið að segja honum var að Gastly var búinn að fá refsingu fyrir að keyra of hratt á þjónustusvæðinu.

Hann fékk tvær fimm sekúndna refsingar fyrir að keyra 0,1 kílómetra á klukkustund of hratt inni á þjónustusvæðinu. Refsingarnar færðu Gasly úr þriðja sætinu niður í það sjöunda.

Eftir að honum var sagt frá þessu var Gasly skiljanlega tilfinningaríkur enda mikil vinna sem fer í keppnir, sérstaklega á erfiðum brautum eins og Mónakó.

„Ég lifi fyrir þessi augnablik, en það er ömurlegt að vera refsað á ósanngjarnan hátt,“ sagði Gasly hundfúll eftir keppni.

Gasly er ekki sá eini sem fékk refsingu fyrir að keyra of hratt inni á þjónustusvæðinu en þeir voru fimm talsins. Ástæðan fyrir því að svona margir keyrðu of hratt er vegna þess að þeir styttu sér leið á þjónustusvæðinu. Þegar ökumenn gerðu það var eins og þeir keyrðu of hratt og voru því refsað.

Eftir keppni sást til Alpine mæla vegalengd þjónustusvæðisins. Eftir mælingarnar kærði Alpine niðurstöðu dómsins. Það gekk ekki hjá liðinu og dómurinn stendur.

Alpine eru sem stendur í fimmta sæti en með dómnum var liðið að missa af mikilvægum stigum í baráttu gegn RB sem er aðeins með tveimur stigum minna.


Tengdar fréttir

Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“

Yfir­burðir ítalska ungstirnisins Kimi Antonelli, ökuþórs For­múlu 1 liðs Mercedes, halda áfram í mótaröðinni. Í stærsta íþrótta­miðli Ítalíu er hann krýndur nýr konungur yfir Monte Car­lo og í spænska stór­blaðinu Mar­ca segir að Kimi sé ekki lengur bara ungstirni, heldur eitt­hvað miklu stærra. 

Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó

Kimi Antonelli hjá Mercedes kom fyrstur í mark í Formúlu 1 kappakstrinum í Mónakó. Lewis Hamilton hjá Ferrari varð annar og horfði á eftir aldursmeti sínu falla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×