Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 8. júní 2026 20:04 Anders Vanga er viðmælandi í nýjasta þætti af Litlu hlutunum. Skjáskot „Eiginkona mín hefur sannarlega bjargað mér síðan ég kynntist henni en það var á sama tíma og móðir mín var að deyja úr krabbameini,“ segir listamaðurinn Anders Vanga sem rekur Reykjavík Glass. Þessi einlægi og skapandi maður er viðmælandi í nýjasta þætti af Litlu hlutirnir með Kára Sverris þar sem hann ræður um erfiðan missi, að veikjast sjálfur af krabbameini, flutninga til Íslands, sköpunargleðina, fjölskylduna og margt fleira.
Hér má sjá viðtalið í heild sinni: Anders vinnur með eld, gler og þolinmæði á einstakan hátt. Líf hans tók stakkaskiptum eftir að hann greindist með krabbamein og sú reynsla breytti sýn hans á lífið, tímann og það sem raunverulega skiptir máli. Í heimi þar sem allt hreyfist hratt minnir hann áhorfendur á mikilvægi þess að hægja á sér, skapa með höndunum og leyfa hlutunum að taka tíma. Tók stökkið til Íslands Anders lærði erlendis og vann meðal annars í Bretlandi og Bandaríkjunum fyrir glerframleiðendur ásamt því að reka sjálfur lítið glerverkstæði. Fyrir þremur árum tók hann stökkið til Íslands og byrjaði alveg frá grunni hér. „Það var algjörlega nýr kafli,“ segir Anders en hann hefur mikla ástríðu fyrir sinni list. „Ég geri skissurnar og mótunina beint í glerinu. Mér finnst mjög gefandi að pakka þessu saman, klára allt fallega og setja það á hilluna. Það er notaleg tilfinning,“ bætir Anders við en hann sér sannarlega fegurðina í litlu hlutunum. „Það sem gerir mig hamingjusaman er fjölskyldan mín. Ég er mjög ánægður að við fluttum til Íslands og að konan mín og börn hafi það gott. Ég er hamingjusamur að vera hér á Íslandi og ég held að ég hafi verið mjög heppinn. Þegar maður byrjar á einhverju og þekkir engan eins og á Íslandi þá þarft maður ekki að senda of marga tölvupósta. Fólk segir einfaldlega: „Já, við gerum þetta. Hvað vantar þig mikið?“ Margir hafa verið mjög hjálpsamir.“ Svaf kannski í eina klukkustund á nóttu Anders er hamingjusamlega giftur og hafa hjónin þurft að ganga í gegnum ýmislegt saman. „Eiginkona mín hefur sannarlega bjargað mér síðan ég kynntist henni en það var á sama tíma og móðir mín var að deyja úr krabbameini. Ég varð gjörsamlega ástfanginn og á sama tíma að missa mömmu mína. Það var erfitt og óraunverulegt. Það er ekki hægt að lýsa því með orðum, svo margar tilfinningar. Ég svaf kannski eina klukkustund á nóttu ef ég svaf yfir höfuð.“ Börnin hafa sömuleiðis verið mikið haldreipi. „Hlutir eins og að eyða tíma með þeim eru mjög mikilvægir.“ „Allt í einu ertu ekki sterkur lengur“ Anders fór sjálfur í gegnum krabbamein fyrir nokkrum árum. „Það kennir manni líka hversu brothættur maður er. Sem manneskja heldurðu að þú sért sterkur og getir allt en svo allt í einu ertu ekki sterkur lengur. Þú getur ekki bara þröngvast áfram, þú þarft að leggjast niður og einhver þarf að elda fyrir þig og fara með þér til læknis. Börnin segja ekkert en þau vita alveg hvað er að gerast. Ég valdi að vera hér á Íslandi og vildi líka fá meðferðina mína hér. Og það var ekki sérstaklega auðvelt. Ég var varla með hár á höfðinu þegar ég byrjaði að vinna aftur, fingurnir voru dofnir og tærnar líka og allt var einhvern veginn skrýtið en ég varð að byrja að gera eitthvað aftur.“
Litlu hlutirnir Krabbamein Menning Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira