Golf

Gunn­laugur að­eins tveimur höggum frá toppnum eftir fyrri hringinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson spilaði fyrsta hringinn á fimm höggum undir pari.
Gunnlaugur Árni Sveinsson spilaði fyrsta hringinn á fimm höggum undir pari. Getty/Tanner Pearson

Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, eru á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open á The Lakes Golf & Country Club-vellinum í Westerville, Ohio. Gunnlaugur Árni gerði mjög góða hluti á fyrsta hring.

Lokaúrtökumót U.S. Open er síðasta stigið í átt að þátttöku í einu af fjórum risamótum golfsins. Þar leika kylfingar 36 holur á einum degi og aðeins þeir fjórir efstu tryggja sér sæti á sjálfu U.S. Open mótinu. 

Gunnlaugur Árni er jafn í fjórða sæti eftir fyrri átján holur mótsins, tveimur höggum á eftir efsta manni. Hann lék hringinn á 67 höggum eða fimm undir pari. Gunnlaugur fékk fjóra fugla og fimm pör á fyrri níu holunum og fylgdi því eftir með þremur pörum á holum tíu til tólf. Eini skolli hringsins kom á þrettándu holunni en hann svaraði honum með frábærum erni á sextándu holunni.

Gunnlaugur er því í góðum málum fyrir seinni umferð mótsins sem hefst innan skamms. Stutt er þó á milli manna en fimm aðrir kylfingar léku hringinn einnig á fimm höggum undir pari.

Dagbjartur lék á 73 höggum, einu höggi yfir pari, og er jafn í 37. sæti. Íslandsmeistarinn fékk par á allar holurnar á fyrri níu og opnaði seinni níu holurnar á fugli. Skolli á tólftu og tvöfaldur skolli á fjórtándu reyndust einu töpuðu högg hringsins, en Dagbjartur fékk einn fugl til viðbótar á lokaholunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×