Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Sindri Sverrisson skrifar 10. júní 2026 09:37 Gunnlaugur Árni Sveinsson með boðið sitt um að mæta á Opna bandaríska í næstu viku, fyrstur Íslendinga. @lsusports „Þetta er svo ofsalega stórt og ég held að maður átti sig ekki alveg á þessu fyrr en mótið rennur upp eftir rúma viku,“ segir Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs Árna sem fyrstur íslenskra karla vann sig inn á Opna bandaríska mótið í golfi. Foreldrar Gunnlaugs Árna mættu í Bítið á Bylgjunni, eðlilega að rifna úr stolti.
Gunnlaugur Árni, sem er aðeins tvítugur, vann sig inn á þetta virta risamót í æsispennandi lokaúrtökumóti á mánudaginn. Pabbi hans var kylfusveinn í gegnum holurnar 36, eða raunar 37 því úrslitin réðust í bráðabana. Á meðan fylgdist mamman, Halla Árnadóttir, með stráknum sínum ásamt ömmu, bróður og mágkonu Gunnlaugs Árna. „Við vorum alveg að fara á taugum. Þetta var ólýsanlegt. Maður vissi ekki hvort maður ætti að hlæja eða gráta,“ sagði Halla í Bítinu í morgun. Hægt er að hlusta á viðtalið hér að neðan. „Kom á óvart en samt ekki“ En áttu foreldrarnir von á að Gunnlaugur Árni, sem þó hefur staðið sig svo frábærlega síðustu ár og meðal annars hæst komist í 8. sæti á heimslista áhugamanna, kæmist svo snemma inn á risamót? „Maður hélt kannski að það væri lengra í þetta,“ sagði Halla og Sveinn tók undir það. Hann benti á að í vor hefði Gunnlaugur Árni veikst og misst af móti í Púertó Ríkó. Hann hefði svo misst afa sinn í mars, á milli tveggja móta, og komið þá heim til Íslands í nokkra daga. Þá hefði hann meiðst í baki í lok mars en væri nú að ná fyrri styrk. Það að komast núna inn á sjálft U.S. Open sýnir því mikinn styrk: „Þetta er búið að vera erfitt vor hjá honum. Hann er búinn að standa sig gríðarlega vel síðustu tvö ár og fara hratt upp heimslista áhugamanna, enda mikil vinna sem liggur að baki. Hann fór í þetta mót í fyrra og sagðist hafa lært helling af því, og ætlaði sér að fara í gegn núna, svo að þegar maður hugsar til baka þá kom þetta á óvart en samt ekki. En maður vissi alveg að hann hefði getuna í þetta,“ sagði Sveinn. „Hann var búinn að manifesta að núna væri birtan að koma aftur yfir,“ bætti Halla við. Töluðu um eitthvað annað en golf Sveinn var kylfuberi fyrir son sinn á lokaúrtökumótinu á mánudaginn og það virtist heppnast vel. Hann verður þó ekki með kylfurnar í næstu viku heldur ætla þau Halla að njóta þess að fylgjast með sem áhorfendur og helstu stuðningsmenn á Shinnecock Hills vellinum í Southampton í New York. „Já, ég kaddíaði oft fyrir hann hér heima, þegar hann var yngri. Ég hef að vísu ekki kaddíað fyrir hann á þessu stigi áður en hann bað mig um að koma og ég held að það hafi kannski verið mjög sniðugt. Taka hugann aðeins frá golfi. Við gátum rætt margt annað. Þetta er langur dagur, tíu klukkutímar á golfvellinum, og þú þarft að halda fókus. Eyða ekki allri orkunni á fyrri 18 holunum. Stýra hvernig þú nálgast völlinn og umhverfið. Þú mátt ekki láta þetta trufla þig og ég held að það hafi verið snjallt að ræða eitthvað annað samhliða,“ sagði Sveinn. Pabbinn vissi stöðuna en sagði ekkert En hvernig var tilfinningin þegar takmarkið mikla náðist? „Ég á rosalega erfitt með að lýsa því. Satt best að segja vorum við báðir tiltölulega rólegir fyrstu 34 holurnar. Síðustu tvær holurnar fann maður að það var komið smá stress. Hann vissi ekki stöðuna en vissi alveg að hann væri í góðum séns. Það var mikið af áhorfendum að fylgjast með síðustu tvær holurnar, svo hann vissi að það var eitthvað í gangi. Ég vissi stöðuna en lét ekkert uppi. Tilfinningin að sjá hann klára þetta í bráðabananum var alveg ólýsanleg. Það tók okkur svolítinn tíma að átta okkur á þessu þegar þetta var búið.“ Sveinn sagði að það kæmi í hlut Bjarka Péturssonar að verða kylfusveinn Gunnlaugs Árna í næstu viku: „Hann fór líka með honum síðasta haust á stærsta áhugamannamót í heimi, US Amateur, og þeir ná vel saman. Það er gaman að því að Gulli bar pokann hjá Bjarka fyrir svona 3-4 árum þegar Bjarki var að reyna að komast inn á Evrópumótaröðina. Þannig að þeir eru vel tengdir.“
Golf Opna bandaríska Tengdar fréttir Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Gunnlaugur Árni Sveinsson verður meðal þátttakenda á U.S. Open risamótinu í golfi í ár eftir að hafa komist í gegnum bráðabana í kvöld. Hann er fyrstur Íslendinga til að tryggja sig inn á Opna bandaríska meistaramótið í karlaflokki. 8. júní 2026 23:17 Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska Sjá meira
Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Gunnlaugur Árni Sveinsson verður meðal þátttakenda á U.S. Open risamótinu í golfi í ár eftir að hafa komist í gegnum bráðabana í kvöld. Hann er fyrstur Íslendinga til að tryggja sig inn á Opna bandaríska meistaramótið í karlaflokki. 8. júní 2026 23:17