Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 17. júní 2026 13:27 Hrafnkell Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu Forstjóri Fjarskiptastofu segir að um sex þúsund símtæki á landsvísu gætu verið í þeirri stöðu að ná ekki í Neyðarlínuna undir ákveðnum kringumstæðum í kjölfar lokana fjarskiptafélaganna á 2G og 3G kerfum. Þetta séu helst eldri símar sem noti gömlu fjarskiptakerfin til að hringja neyðarsímtöl.
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, segir að um sex þúsund símar, eða eitt prósent símtækja á landinu, geti verið í þeirri stöðu að ná ekki í gegn þegar hringt er í Neyðarlínuna í tilteknum aðstæðum. Hann segir hlutfallið lágt en að „sex þúsund er sex þúsund of mikið“. Hrafnkell var viðmælandi í Reykjavík Síðdegis í gær. Í spilaranum má hlusta á viðtalið í heild sinni: Það geti verið fjölmargar ástæður fyrir því að símar virki ekki sem skyldi, en ástæðurnar séu einkum tvær. Annars vegar fari eldri símtæki í „neyðarham“ þegar hringd eru símtöl í Neyðarlínuna. Í slíkum ham noti eldri símar gömlu fjarskiptakerfin, þ.e. 2g og 3g kerfi, til að afgreiða neyðarsímtölin. Símar nái því ekki sambandi við fjarskiptakerfi til þess að afgreiða símtal í Neyðarlínu þó svo að hægt sé að hringja í öll önnur símanúmer á landinu. Þau kerfi hefðu þótt öflug á sínum tíma þegar ákvörðunin var tekin að láta þau afgreiða neyðarsímtöl. Nú þyki nýju kerfin, 4g og 5g, miklu öflugri. Fjarskiptafélögin í samstarfi við Neyðarlínuna hafa sett upp prufunúmer: 1280. Þegar hringt er í númerið fer síminn í svipaðan neyðarham og þegar hringt er í Neyðarlínuna. Þá er hægt að greina hvort fólk geti hringt slík símtöl úr símum sínum eða ekki. Umrædd símtæki séu mikill minnihluta símtækja hérlendis. Helst séu þetta eldri símar, fjögurra ára gamlir og eldri, sem ekki er búið að uppfæra eða sem ekki næst að uppfæra. Hins vegar séu örfá tilvik um það að símar sem noti nýju fjarskiptakerfin séu ekki með rétt uppsetta talþjónustu, þ.e. samkvæmt tilteknum talstaðli. Það geti valdið því að engin símtöl fari í gegn í tilteknu símtæki. Hrafnkell segir þó þá sem glími við þetta vandamál hafi líklega orðið varir við það fremur snemma, enda fari engin símtöl í gegn. Í fyrra tilvikinu sé þó erfiðara að átta sig á því að það sé vandamál til staðar, þar sem einungis neyðarsímtöl fari ekki í gegn vegna neyðarhamsins. Fjarskiptafélögin standa að lokunum eldri kerfanna, segir Hrafnkell. Allir viðskiptavinir félaganna hafi verið upplýstir um lokunina, annaðhvort með skilaboðum eða símtali.
Fjarskipti Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Sjá meira