Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Freyja Þórisdóttir skrifar 18. júní 2026 10:36 Þeir Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May stjórnuðu þáttunum saman í hartnær tuttugu ár. Jeremy Clarkson, þáttastjórnandi „Top Gear“ og annarra breskra sjónvarpsþátta, greindi frá því á dögunum að hann hefði verið greindur með krabbamein. Í síðustu tveimur þáttum fimmtu þáttaraðar „Clarkson's Farm“ sagði Clarkson meðleikurum sínum, Charlie Ireland og Kaleb Cooper, frá greiningunni.
Cooper, sem var augljóslega brugðið, hváði að það gæti ekki verið satt sem Clarkson segði og spurði hann svo hvar meinið væri. Clarkson sagði það ekki koma neinum við hvar það væri en útskýrði svo að hann hafi vitað af krabbameininu síðan í maí. Veggspjöld fyrir Clarkson's Farm sjást í London 14. júní 2021 í London, Englandi.Getty Hann sagði einnig að ástæðan fyrir því að hann „hvarf um daginn“ væri sú að hann fór til læknis og í vefjasýnatöku. Í kjölfarið hafi læknirinn sagt honum að krabbameinið væri „árásargjarnt“ en sem betur fer hefðu þeir uppgötvað það mjög snemma. „Ég mun þurfa að fara í aðgerð og hún verður fljótt afgreitt, en líkaminn er óstarfhæfur í smá tíma,“ sagði Clarkson. Síðar í þættinu má sjá Clarkson í sjúkrarúmi, þar sem hann sagði að fimmta þáttaröð „Clarkson's Farm“ hefði byrjað „á því að ég var í sjúkrarúmi og nú erum við í lok fimmtu þáttaraðar og ég er aftur kominn í sjúkrarúm.“ Varaði aðdáendur við þættinum Hann útskýrði að eitthvað af meðferðinni hefði „farið úrskeiðis“ og að ef næsta meðferðarlota hans yrði „árangursrík, þá sjáumst við í sjöttu þáttaröð, en ef ekki, þá gerum við það ekki.“ Hann hafði fyrir sýningu lokaþáttar fimmtu þáttaraðarinnar varað aðdáendur sína við því að það gæti reynst þeim mjög erfitt að sjá það sem fram kæmi. Kynnar Top Gear, James May, Richard Hammond og Jeremy Clarkson, taka við verðlaunum fyrir vinsælasta fræðsluþáttinn á National Television Awards-verðlaunahátíðinni árið 2011 í O2 Arena í London.Getty Í næstum 20 ár stjórnaði Clarkson „Top Gear“ ásamt Richard Hammond og James May. Þátturinn, sem var sýndur á BBC í 240 þáttum frá 2002 til 2022, fylgdist með þremenningunum þar sem þeir ferðuðust um heiminn og ræddu um bíla, önnur farartæki og margt, margt, fleira. „Clarkson's Farm“, sem var frumsýndur á Prime Video árið 2021, fylgist með Clarkson þar sem hann reynir að reka bóndabæ úti í sveit án nokkurrar fyrri reynslu.
Bretland Bílar Krabbamein Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira