Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. júní 2026 15:03 Hrafnkell Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofnu. Forstjóri Fjarskiptastofu segir að nokkrar kvartanir og ábendingar um verra símasamband eftir lokun 2G og 3G kerfanna hafi borist. Hann segir ákvörðunina um að loka gömlu kerfunum alfarið á ábyrgð fjarskiptakerfanna sem eigi og reki kerfin og nú sé boltinn hjá þeim að bregðast við kvörtunum viðskiptavina.
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, segir stofnuninni hafa borist ábendingar bæði frá einstaklingum og sveitarstjórnum um slæmt símasamband eftir að fjarskiptafélögin lokuðu gömlum 2G og 3G sendum. Lokanir hófust á höfuðborgarsvæðinu í apríl og í kjölfarið var öllum 3G-kerfum lokað á landsbyggðinni í maí. Hann segir ákvörðunina um útfösun kerfanna vera að beiðni og ábyrgð fjarskiptafélaganna sem eigi og reki kerfin. Hlutverk Fjarskiptastofu í ferlinu sé samhæfing og hann vilji setjast yfir þessi mál með félögunum. Hann sé á leið á fund í dag þar sem félögin verði innt eftir því hvernig þau hyggist bregðast við þessum ábendingum frá viðskiptavinum sínum. „Við erum að reyna svona að höndla það að koma einhverjum styrk í þetta samtal og að tryggja hagsmuni neytenda með sem bestum hætti.“ Fjallað var um málið í kvöldfréttum á Sýn í gær en þar var meðal annar rætt við oddvita Húnabyggðar sem sagði brýnt að þétta netið með því að fjölga nýjum sendum. Norðan Hvammstanga í Húnaþingi vestra, á Sauðadalsá á Vatnsnesi, upplifa bændur verra símasamband. Þar finna íbúar mun. Hrafnkell segir fjarskiptafélögin vera með tíðniheimildir og í þeim komi fram ýmis ákvæði og skilmálar um hvernig eigi að útfæra kerfin. Krafa sé um að útbreiðsla þeirra kerfa sem taki við verði að meðaltali jafn góð og gömlu kerfanna á landsvísu. Hann segir kerfin sem félögin reka engan veginn einföld, þau séu gríðarlega stór tæknikerfi. Það taki mögulega tíma að aðlaga 4G- og 5G-kerfin að þessum nýja raunveruleika og fjarskiptafélögin hafi lagt gríðarlega vinnu í það. Hann segir nýju kerfin að mörgu leyti mun flóknari en þau gömlu, til dæmis sé hegðun kerfanna mismunandi en einnig hvernig þau bregðist við álagi. Nýju tækninni fylgi meiri gæði og afkastageta en gömlu kerfin hafi verið einfaldari og því dreifi hún örlítið betur úr sér. Hrafnkell segir nýju kerfin öflugri að langflestu leyti en að það sé í eðli þeirra að dreifisvæðin dragist aðeins saman. „Dreifisvæðisjarðarinn“ dragist saman um eitt til sjö prósent og mögulega þurfi að fjölga sendum til að ná sama útbreiðslusvæði gömlu sendanna. Er þetta meðal þess sem hann vill ræða á fundi við fjarskiptafélögin. „Eru það ekki sameiginlegir hagsmunir allra að búa svo um hnútana að þessar kvartanir verði teknar alvarlega, brugðist við hverri og einni og það skoðað? Og gerðar þær ráðstafanir sem hægt er að gera til að koma til móts við notendur eins og hægt er?“
Fjarskipti Tækni Síminn Sýn Nova Tengdar fréttir Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Miklar kvartanir vegna verra símasambands heyrast frá Norðurlandi eftir að slökkt var á gömlu farsímakerfunum. Oddviti Húnabyggðar segir brýnt að þétta netið með því að fjölga nýjum sendum. 18. júní 2026 22:44 Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Forstjóri Fjarskiptastofu segir að um sex þúsund símtæki á landsvísu gætu verið í þeirri stöðu að ná ekki í Neyðarlínuna undir ákveðnum kringumstæðum í kjölfar lokana fjarskiptafélaganna á 2G og 3G kerfum. Þetta séu helst eldri símar sem noti gömlu fjarskiptakerfin til að hringja neyðarsímtöl. 17. júní 2026 13:27 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira
Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Miklar kvartanir vegna verra símasambands heyrast frá Norðurlandi eftir að slökkt var á gömlu farsímakerfunum. Oddviti Húnabyggðar segir brýnt að þétta netið með því að fjölga nýjum sendum. 18. júní 2026 22:44
Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Forstjóri Fjarskiptastofu segir að um sex þúsund símtæki á landsvísu gætu verið í þeirri stöðu að ná ekki í Neyðarlínuna undir ákveðnum kringumstæðum í kjölfar lokana fjarskiptafélaganna á 2G og 3G kerfum. Þetta séu helst eldri símar sem noti gömlu fjarskiptakerfin til að hringja neyðarsímtöl. 17. júní 2026 13:27