Sigurinn blasir við Clark en Scheffler lætur sig dreyma Sindri Sverrisson skrifar 21. júní 2026 09:35 Wyndham Clark nældi meðal annars í örn á 15. holu í gær. Getty/Christian Petersen Wyndham Clark jók forskot sitt í gær á Opna bandaríska mótinu í golfi og er með sex högga forskot á næstu menn fyrir lokadag mótsins í dag. Hann er þó var um sig og veit af besta kylfingi heims, Scottie Scheffler, sem þráir að komast í fámennan hóp þeirra sem unnið hafa öll fjögur risamótin.
Bein útsending frá lokahringnum á Opna bandaríska mótinu hefst klukkan 15 á Sýn Sport í dag. Clark hefur spilað eins og engill á Shinnecock Hills-vellinum til þessa og erfitt að sjá fyrir sér annað en að hann vinni mótið í annað sinn, eftir að hafa einnig fagnað sigri árið 2023. Það er eini risamótstitill þessa 32 ára kylfings til þessa. Clark lék á pari vallarins í gær en grunnurinn að góðri stöðu hans er fyrsti hringurinn sem hann lék stórkostlega, eða á -6 höggum, og ljóst að hann ætti að vera í mun betra skapi en í fyrra þegar Clark tók æðiskast inni í búningsklefa og var settur í bann á Oakmont-vellinum sem þá var spilað á. Fjórir kylfingar koma næstir á eftir Clark, á samtals -1 höggi, en þar á meðal er Scheffler sem eftir að hafa spilað fyrsta hringinn á +2 höggum hefur náð að rétta vel úr kútnum og verður nú í lokaráshópnum með Clark. Efstu menn: -7 Wyndham Clark (BNA); -1 Scottie Scheffler (BNA), Sahith Theegala (BNA), Tom Kim (KÓR), Sam Stevens (BNA). Valdir kylfingar: PAR Xander Schauffele (BNA); +1 Tommy Fleetwood (ENG), Collin Morikawa (BNA), Matt Fitzpatrick (ENG); +3 Rory McIlroy (NÍR); +4 Justin Rose (ENG); +7 Ludvig Åberg (SVÍ). Það hefur bara einu sinni gerst á risamóti, frá fyrsta Masters-mótinu árið 1934, að kylfingur hefur misst niður sex högga forskot á lokadegi. Það var þegar Nick Faldo náði í sinn þriðja Masters-titil árið 1996 og sló Greg Norman við. Clark ætti því að vera með gott sjálfstraust fyrir lokahringinn: „Mér líður vel. Þetta hefur orðið þægilegra með hverju árinu, að vera í svona stöðu. Scottie er besti kylfingur heims og mun eflaust spila vel. Hann gerir það alltaf en það er gott að hafa sex högga forskot á hann,“ sagði Clark. Það þarf allt að ganga upp hjá Scheffler en með sigri á Opna bandaríska yrði hann búinn að vinna öll fjögur risamótin. Aðeins þeir Gene Sarazen, Ben Hogan, Gary Player, Jack Nicklaus, Tiger Woods, og Rory McIlroy hafa afrekað það. „Það yrði mjög sérstakt. Þetta mót hefur svo mikla þýðingu fyrir mig. Það eina sem ég get gert er að leggja allt í sölurnar. Ég er með tækifæri til að fara þarna út, eiga frábæran hring og veita sjálfum mér möguleika á að vinna mótið,“ sagði Scheffler.
Golf Opna bandaríska Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska Víkingaróður Norðmanna kominn inn í golfið líka Sæti á risamóti í boði hjá Haraldi og Gunnlaugi Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Haraldur Franklín nálgast Opna breska Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Kom pabba sínum algjörlega á óvart á átjándu holunni á US Open Bauluðu á verðandi US Open meistara Wyndham Clark er sigurvegari U.S. Open Guðrún Brá og Birgir Björn Íslandsmeistarar í holukeppni Sigurinn blasir við Clark en Scheffler lætur sig dreyma Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Sjá meira