„Þetta var mjög kærkomið“ Árni Gísli Magnússon skrifar 22. júní 2026 20:58 Arna Sif segir að fyrsti sigurinn hafi verið kærkominn Vilhelm/Vísir Þór/KA sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deild kvenna gegn Þrótti á heimavelli í kvöld í níundu umferð deildarinnar.
Arna Sif Ásgrímsdóttir, leikmaður Þór/KA, var létt eftir að hafa náð í fyrsta sigurinn og bjartsýn á framhaldið. Kærkominn sigur, er það ekki rétt orð? „Það er bara eina orðið yfir þetta. Við erum búnar að þurfa bíða ansi lengi eftir þessum þannig þetta var mjög kærkomið.“ Arna segir nokkra hluti hafa gengið vel í dag sem skilaði sigrinum. „Mér fannst við bara það taka svolítið með okkur úr síðasta leik, orkan og lífið og svona stemning. Í síðasta leik vorum við ekki búnar að gera vel varnarlega, við vorum að berjast og allt þetta en vorum ekki sérstaklega góðar á boltann. Mér fannst við svona blanda því betur í dag, við gerðum vel þegar við unnum hann og vorum alveg grjótharðar þegar við töpuðum honum þannig þetta var svona já orkan og smá leikgleði og stemning.“ Arna var sammála undirrituðum að lið hennar hefði haft yfirburði á miðsvæðinu stóran hluta leiksins og verið yfir í návígum. „Það er bara mín tilfinning líka og það er bara það sem við ætluðum að gera. Þær voru svo sem að spila, við vissum að þær voru að spila fyrir stuttu, og væru þreyttari og ferðalag og það væri auðvelt að finna afsökun þannig við vildum bara svolítið einmitt berja á þeim frá fyrstu mínútu og mér fannst það virka vel.“ Það er pása á deildinni fram til 9. júlí vegna landsliðsverkefna U-19 landsliðsins sem er kannski ekki ákjósanlegt fyrir Þór/KA núna þegar fyrsti sigurinn er loksins kominn. „Ég var búin að hugsa þetta, þetta er mjög skrítið allar þessar pásur, sérstaklega eins og fyrir okkur sem er búið að ganga illa ef að við værum kannski að komast á smá skrið og þurfa að stoppa aftur en það bara skiptir engu máli. Við nýtum okkur pásuna vel og komum svo stemmdar inn í næsta kafla bara.“ „Við þurfum bara að taka allt þetta jákvæða sem við erum búnar að gera í síðustu leikjum með okkur og byggja ofan á það og ef okkur tekst það og við náum að halda þessari orku og þessari stemningu þá eru bara góðir hlutir að fara gerast“, sagði Arna að lokum.
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía og stöllur í góðum gír Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Sjá meira