Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Atli Ísleifsson skrifar 27. júní 2026 23:31 Íslendingurinn neitaði sök í málinu en bar við sig minnisleysi vegna ótæpilegrar áfengisneyslu. Danska lögreglan Dómstóll í Næstved á Sjálandi í Danmörku hefur dæmt sautján ára Íslending, sem búsettur er í Danmörku, í ellefu mánaða fangelsi fyrir að hafa gengið berserksgang við lögreglustöð og haft í hótunum við lögreglu. Íslendingurinn neitaði sök í málinu en bar við sig minnisleysi vegna ótæpilegrar áfengisneyslu. Með brotunum rauf hann skilorð.
Íslendingurinn var ákærður fyrir að hafa unnið skemmdarverk á lögreglubíl, sparkað í höfuð lögreglumanns þannig að hann hlaut heilahristing og hótað lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra lífláti. Þetta kemur fram í frétt Sjællandske Nyheder en dómur í málinu féll í síðasta mánuði. Atvikið átti sér stað að næturlagi um miðjan síðasta marsmánuð. Maðurinn var handtekinn af lögreglu eftir að hafa kastað óþekktum hlut í gegnum hliðarglugga lögreglubíls sem lagður var fyrir utan lögreglustöðina í Haslev. „Þú munt ekki sjá fjölskyldu þína aftur,“ „Ég mun kasta handsprengju á þig,“ og „Ég vona að móðir þín deyi,“ er meðal þess sem maðurinn hreytti í lögreglumennina. Þá kallaði hann lögreglumennina sömuleiðis ýmsum nöfnum. Í dómi segir að maðurinn hafi einnig hótað lögreglumönnunum og að sprengja fjölskyldu annars þeirra þegar hann kallaði „4-0 verður bráðum 6-0“ sem er vísun í morð á lögreglumönnum, framin af Palle Sørensen árið 1965. Hugtakið „4-0 til Palle“ hefur verið notað með vísun í að Sørensen drap fjóra lögreglumenn og ályktaði dómarinn að Íslendingurinn hafi með orðum sínum óskað þess að lögreglumennirnir tveir – karl og kona – hlytu sömu örlög. Dómstóllinn dæmdi manninn í þriggja mánaða fangelsi vegna brotanna en með þeim rauf hann skilorð vegna fyrri dóma og var refsingin ákveðin ellefu mánaða óskilorðsbundið fangelsi. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp, eða 14. mars.
Danmörk Íslendingar erlendis Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Sjá meira