Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Atli Ísleifsson skrifar 23. júní 2026 14:26 Baldvin Þorsteinsson tók við stöðu forstjóra Samherja af Þorsteini föður sínum á síðasta ári. Baldvin segir að uppgjörið sýni að grunnrekstur Samherja sé traustur og fjárhagur þess sterkur. Vísir/Vilhelm Tekjur samstæðu Samherja námu 78,4 milljörðum króna á síðasta ári og nam hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) 10,7 milljörðum króna og jókst um 1,8 milljarða milli ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samherja. Þar segir að hagnaður af rekstri (EBIT) hafi verið 7,3 milljarðar króna samanborið við 6,1 milljarðs króna hagnað árið áður og jókst hann því um tæplega 19 prósent á milli ára. Hagnaður eftir skatta nam tæplega 8,5 milljörðum. Aukinn rekstrarhagnaður er sagður skýrast öðru fremur af háu afurðaverði á botnfiskmörkuðum og traustum rekstri. Eignir í lok árs námu 131,3 milljörðum króna og eigið fé nam 99,6 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall í árslok var 75,8 prósent. Haft er eftir Baldvini Þorsteinssyni forstjóra að ársuppgjör Samherja sýni að grunnrekstur félagsins sé traustur og fjárhagur þess sterkur. „Það gerir Samherja kleift að horfa til frekari fjárfestinga, einkum þeirra sem miða að því að auka samkeppnishæfni félagsins og þar með íslensks sjávarútvegs,“ segir Baldvin. Forstjóraskipti á árinu Í tilkynningunni segir að árið 2025 hafi verið viðburðaríkt hjá Samherja. „Tímamót urðu þegar stofnendur félagsins, Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson, létu af störfum eftir 42 ára starf hjá félaginu eða frá stofnun þess. Þorsteinn Már í starfi forstjóra og Kristján framkvæmdastjóri útgerðarsviðs. Sjávarútvegur hefur verið ævistarf og ástríða þeirra beggja og náið samstarf þeirra hefur verið kjölfestan í rekstri Samherja alla tíð frá 1983. Húsnæði Samherja á Dalvík. Vísir/Vilhelm Þá urðu einnig ákveðin tímamót í rekstri Samherja fiskeldis ehf. þegar nýir hluthafar, bæði innlendir og erlendir fjárfestar, komu inn í félagið í kjölfar fjármögnunar Eldisgarðs, nýrrar landeldisstöðvar fyrir lax, á Reykjanesi. Eftir breytingar á hluthafahópnum á Samherji hf. 61,5% eignarhlut í móðurfélagi Samherja fiskeldis eftir að hafa átt tæplega 100% hlutafjár í byrjun ársins. Veiðar og vinnsla gengu vel Árið 2025 var gott ár í veiðum, vinnslu, landeldi og sölu afurða. Samherji gerði út flota sjö fiskiskipa á árinu. Um er að ræða fjóra ísfisktogara, tvö uppsjávarskip og einn frystitogara. Ísfisktogarar félagsins lönduðu 26.691 tonni af fersku hráefni á síðasta ári. Mestur var aflinn í þorski eða 16 þúsund tonn og sem fyrr voru aðrar helstu botnfisktegundir ýsa, ufsi og karfi. Landaður afli ísfisktogara var að langstærstu leyti unninn í fiskvinnslum Samherja á Eyjafjarðarsvæðinu. Annars vegar í landvinnslunni á Dalvík og hins vegar í landvinnslu ÚA á Akureyri. Þessar fiskvinnslur tóku samtals á móti 33.166 tonnum af hráefni á árinu,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að uppsjávarskip Samherja hafi landað 51.287 tonnum af hráefni á árinu. Mest hafi verið landað af kolmunna eða 22.262 tonnum. Athugasemd ritstjórnar: Í upphaflegri fyrirsögn fréttarinnar sagði að hagnaðurinn hafi verið um 11 milljarðar króna. Þar er um að ræða hagnaður fyrir skatta, en hagnaður eftir skatta nam 8,5 milljarðar króna. Fyrirsögninni hefur verið breytt.
Sjávarútvegur Uppgjör og ársreikningar Akureyri Dalvíkurbyggð Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira